Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Kynferðisbrot á leikskólum eru áfall fyrir allt samfélagið“

Read Full Article →

Ítrekuð mál, sem varða kynferðisbrot á leikskólum eru áfall fyrir allt samfélagið, segir Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar sem aðstoðar leikskóla þar sem slík mál hafa komið upp. „Hlutverk mitt í þessum málum hefur verið almenn sálgæsla fyrir foreldra og starfsfólk,“ segir Indíana. Spurð hvaða leikskólar hafi leitað ráðgjafar hennar segir hún að auk leikskóla í Reykjavík séu það leikskólar á Akranesi, Akureyri og í Garðabæ. Mál á sex leikskólum hafa verið til rannsóknar Síðustu mánuði hafa mál, þar sem grunur er um að leikskólastarfsmaður hafi brotið gegn leikskólabarni og varða sex leikskóla víða um land, verið til rannsóknar hjá lögreglu. Starfsmaður á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík sætir ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Málið kom upp 2025 og rannsókn lögreglu er enn í gangi í að minnsta kosti þremur málum er varða brot sama starfsmanns gegn fleiri börnum. Í fyrra kom upp grunur um brot gegn barni á leikskólanum Brákarborg en rannsókn var felld niður. Rannsóknir á meintum brotum starfsmanns gegn börnum á leikskólunum Garðaseli á Akranesi og Krakkakoti í Garðabæ eru í gangi og í byrjun ársins var rannsókn hætt á máli sem kom upp á leikskólanum Undralandi á Flúðum í janúar. Grunur var um brot starfsmanns gegn barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri 2024, eftir rannsókn felldi lögregla málið niður. Það komst í hámæli í vikunni og óskað var eftir að þeir sem byggju yfir frekari upplýsingum létu lögreglu vita. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort rannsóknin verði tekin upp aftur. Hræðsla og ótti Indíana segir margar spurningar brenna á foreldrum sem eiga börn í þeim leikskólum þar sem þessi mál hafa komið upp. „Það er fyrst og fremst hræðsla og ótti um eigin börn. Þetta er auðvitað bara áfall, bæði fyrir foreldra og starfsfólk, þessi samfélög í heild sinni, leikskólasamfélagið í heild sinni og samfélaginu okkar allra. Þegar þessi ótti og hræðsla kemur upp, þá er skiljanlegt fyrsta viðbragð að spyrja barnið sitt: kom eitthvað fyrir þig,“ segir Indíana. Að spyrja barn; meiddi þig einhver? Kom eitthvað fyrir þig? Bæði leiðir þau að ákveðnu svari því þetta eru leiðandi spurningar. Þannig að við höfum verið að huga að leiðbeiningum um hvernig á að ræða við börn um þessa hluti. Reykjavíkurborg gaf út fræðsluefni fyrir foreldra ungra barna þar sem meðal annars er fjallað um viðbrögð, sé grunur um að brotið hafi verið gegn ungu barni. Það er aðgengilegt á vefsíðu borgarinnar. Indíana segir misjafnt hvort sveitarfélögin séu með verkferla til að bregðast við málum sem þessum. „Öll sveitarfélögin eru dálítið að bregðast við núna,“ segir hún. Mikilvægt að halda ró Höfum við sofið á verðinum? „Því miður vitum við öll að ofbeldi gagnvart börnum hefur alltaf verið til. Ég held að við séum að grípa þessi mál betur, þegar þau eru að koma.“ Þegar svona mál koma upp vakna skiljanlega miklar áhyggjur hjá foreldrum ungra barna - viltu gefa þeim einhver ráð? „Fyrst og fremst að halda ró. Ef þau greina frá einhverju sem veldur áhyggjum þá hlusta, þakka þeim fyrir og tilkynna til Barnaverndar.“ Ráðgjafi sem hefur aðstoðað leikskóla þar sem upp kemur grunur um kynferðisbrot, segir sveitarfélögin vera að bregðast við núna. Hún segir slík mál áfall fyrir allt samfélagið.

Share this article