Kjósendur ganga að kjörborðinu í Danmörku í dag eftir stutta kosningabaráttu. Kjörstaðir verða opnaðir klukkan sjö að íslenskum tíma. Mette Frederiksen forsætisráðherra boðaði í febrúarlok til kosninga í mars. Síðan hefur verið háð snörp kosningabarátta þar sem innflytjendamál hafa verið í brennidepli ásamt því sem tekist hefur verið á um framfærslukostnað, efnahagsmál og auðvitað hvers konar ríkisstjórn skuli mynda. Leyniþjónustur vöruðu meira að segja við erlendum afskiptum af kosningunum. Skoðanakannanir benda til að mjótt verði á munum en að vinstri flokkarnir hafi ögn meira fylgi, þó ekki nóg til að tryggja sér meirihluta á 179 manna þinginu. Dönsk stjórnmál hafa löngum skipst í bláa blokk á hægri vængnum og rauða á þeim vinstri en sú skipan riðlaðist nokkuð eftir að Lars Løkke Rasmussen yfirgaf Venstre og stofnaði Moderatene. Hann gæti orðið í lykilstöðu við stjórnarmyndun ef marka má skoðanakannanir. Stjórnarmyndun gæti þó orðið flókin því Danski þjóðarflokkurinn hefur fengið byr undir vængi í könnunum en hann vill alls ekki starfa með Moderaterne. Niðurstöðurnar í Færeyjum og Grænlandi, sem hafa tvo þingmenn hvort, gætu haft úrslitaáhrif á stjórnarmyndun verði niðurstöður mjög jafnar. Kjörstaðir verða opnir í tólf klukkustundir og búist er við lokaniðurstöðum um fjórum tímum síðar.