- What: Marine survey conducted by Icelandic research vessels
- Impact: Data collection for fisheries management and ecological studies
Leiðöngrum í stofnmælingu botnfiska - svokallað marsrall - á Íslandsmiðum er um það bil að ljúka um þessar mundir. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er í síðustu togunum úti fyrir Norðurlandi, sjá hér. Fjögur skip tóku þátt í verkefninu, togararnir Breki og Þórunn Sveinsdóttir og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir. Um borð í þessum fjórum skipum unnu ríflega 100 manns; 32 rannsóknamenn og um 70 áhafnarmeðlimir. Þegar rallinu lýkur hefur verið togað er á 580 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið. Eitt stærsta verkefni Hafró Verkefnið er gríðarlega viðfangsmikið og eitt af stærstu verkefnum Hafrannsóknastofnunar. Gögnum sem safnað er gegna lykilhlutverki í stofnmati og veiðiráðgjöf fyrir flestar íslenskar botnfisktegundir. Gögnin eru einnig mikilvæg fyrir ýmiskonar vistfræðirannsóknir. Í verkefninu er gögnum safnað um fiska sem flokkast ekki sem nytjategundir og eru þau notuð til að skoða breytingar í tegundafjölbreytileika, m.a. með tilliti til breytinga í hitastigi sjávar. Auk þess var botndýrum sem fást sem meðafli safnað á nokkrum stöðvum um borð í Árna Friðrikssyni til að fylgjast með lífmassa, fjölbreytileika og útbreiðslu botndýra við Ísland. Ráðgert að helstu niðurstöður liggi fyrir strax eftir páska og verða þær birtar á nýjum stofnmælingarvef Hafrannsóknastofnunar, sjá nánar hér.