Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Katrín Jakobs­dóttir á leið í stjórn Eikar

Read Full Article →

Tilnefningarnefnd fasteignafélagsins Eikar hefur lagt til að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, verði kjörin í stjórn félagsins á aðalfundi sem fer fram 16. apríl næstkomandi. Nefndin leggur til að Katrín taki sæti Guðrúnar Bergsteinsdóttur sem hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2016. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að henni bárust átta framboð til stjórnar, öll frá einstaklingum sem hún telur frambærilega og hæfa. Nefndinni bárust tvær tillögur um áhugasama einstaklinga eftir að framboðsfrestur nefndarinnar rann út þann 19. febrúar sl. Nefndin ákvað að bjóða öðrum þeirra í formlegt viðtal sem hann þáði. Þeir aðilar sem sendu framboð og sem nefndin tilnefnir ekki í stjórn Eikar ákváðu að draga framboð sín til baka. Nefndin lagði til að eftirtalin verði kjörin í stjórn Eikar: Bjarni Kristján Þorvarðarson stjórnarformaður Eyjólfur Árni Rafnsson stjórnarmaður Gunnar Þór Gíslason stjórnarmaður Ragnheiður Harðar Harðardóttir stjórnamaður Katrín Jakobsdóttir „Tilnefninganefnd telur að taki Katrín sæti í stjórn, með þeim fjórum stjórnarmönnum, sem fyrir eru muni félagið styrkjast og áfram búa við vel samsetta stjórn, með víðtæka þekkingu og drifkraft. Nefndin telur að stjórnin þannig samsett sé vel í stakk búin að til þess að leiða félagið og leysa farsællega þau verkefni sem framundan eru.“ Í rökstuðningi nefndarinnar fyrir tilnefningu Katrínar segir að hún hafi víðtæka og einstaka stjórnunar- og leiðtogareynslu, hæfni og þekkingu á flóknum viðfangsefnum sem krefjist m.a. samvinnu og hagsmunajafnvægis. Frá því að Katrín yfirgaf svið stjórnmálanna hefur hún sinnt ráðgjafarstörfum, kennslu og alþjóðlegum verkefnum, meðal annars fyrir Alþjóða heilbrigðisstofnunina. Katrín er formaður stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands ehf. og sinnir verkefnum fyrir Hringborð Norðurslóða. „Hún hefur langa reynslu af stjórnsýslu, stefnumótun og breytingastjórnun og ákvörðunartöku við erfiðar og flóknar aðstæður. Hún hefur mikla innsýn í virkni hagkerfisins og samfélagsins auk þess sem hún býr að sterkum alþjóðlegum tengslum og umtalsverðri reynslu af alþjóðastarfi.“ Í tilnefningarnefnd Eikar sitja Anton Reynir Hafdísarson, Íris Björk Hreinsdóttir og Sigrún Ragna Ólafsdóttir sem er formaður nefndarinnar. Stjórn Eikar leggur til fyrir aðalfundinn að laun hvers stjórnarmanns verði 445 þúsund krónur á mánuði en laun stjórnarformanns verði tvöföld þóknun stjórnarmanns. Það samsvarar 5,6% aukningu milli ára.

Share this article