Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Katrín er með marga hatta

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2026 | 15:30 Katrín er með marga hatta Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Katrín Jakobsdóttir hefur tekið að sér fjölbreytt hlutverk í stjórnum og alþjóðlegum verkefnum frá því að hún lét af embætti forsætisráðherra í apríl 2024. Alls situr Katrín í fimm stjórnum auk þess sem hún hefur verið tilnefnd til stjórnar hjá fasteignafélaginu Eik. Auk stjórnarsetunnar hefur hún tekið að sér ráðgefandi hlutverk á alþjóðavettvangi. Hún er stjórnarformaður Fasteignafélags Háskóla Íslands og gegnir einnig formennsku í nýrri norrænni gervigreindarmiðstöð. Þá á hún sæti í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, er stjórnarformaður Listahátíðarinnar í Reykjavík og stjórnarformaður Rannsóknaseturs um jafnrétti og efnahagslíf hjá viðskiptadeild HÍ. Alþjóðleg verkefni Endanleg ákvörðun um skipan hennar hjá Eik verður tekin á aðalfundi félagsins. Verði hún kjörin mun það bæta sjötta stjórnarsætinu við fyrrverandi forsætisráðherra. Þar með eru verkefni Katrínar þó ekki upptalin. Einnig er hún með eigið félag sem nefnist Njólubaugur þar sem Katrín sinnir kennslu, rit- og ráðgjafarstörfum. Samhliða stjórnarstörfum hefur Katrín tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum, þar á meðal nefndarstörfum á vettvangi WHO, alþjóðlegu heilbrigðisstofnunarinnar, er snýr að loftslags- og heilbrigðismálum, en því verkefni lýkur í maí að sögn Katrínar. Þá á Katrín sæti á samráðsvettvangi á vegum Artctic Circle um málefni norðurslóða. Slík hlutverk teljast ekki hefðbundin stjórnarseta en fela í sér stefnumótandi áhrif á alþjóðavísu. „Ýmsir leitað til mín“ „Það hafa ýmsir leitað til mín og ég er vön að hafa nóg að gera og finnst ágætt að halda því þannig. Dagarnir eru pakkaðri en nokkru sinni fyrr og það finnst mér gott,“ segir Katrín. Spurð segist hún ekki sakna stjórnmálanna. „Maður hættir í stjórnmálum en maður hættir ekki að hafa skoðanir. En minn tími var kominn og það var rétt ákvörðun fyrir mig að hætta þar.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Á skilið annað tækifæri Skurðirnir standa fyrir sínu Ætlar að láta sig hverfa um hríð eftir annasamt ár Katrín er með marga hatta Kate Winslet til Miðgarðs Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heuermann hyggst játa sök Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir „Óábyrgt að vera að boða svona breytingar“ Skurðirnir standa fyrir sínu Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Klifraði yfir girðingu og gekk heim Ekkert lát á lægðunum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Á skilið annað tækifæri Skurðirnir standa fyrir sínu Ætlar að láta sig hverfa um hríð eftir annasamt ár Katrín er með marga hatta Kate Winslet til Miðgarðs Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Skurðirnir standa fyrir sínu Ekkert lát á lægðunum Ekki rökstuddur grunur fyrir broti Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Icelandair „reddaði“ 3.600 manns Klifraði yfir girðingu og gekk heim Ekkert lát á lægðunum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article