Innlent | mbl | 9.3.2026 | 16:13 Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ „Í guðanna bænum, treystið þjóðinni,“ sagði Þorgerður Katrín fyrr í dag. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mætti háværum gagnrýnisröddum stjórnarandstöðunnar á Alþingi fyrr í dag. Var hún t.a.m. sökuð um að fara á bak við þjóð og þing sem og að brjóta þingskapalög. Ráðherrann segir stjórnarandstöðunni að treysta þjóðinni. Margir þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu þingsályktunartillögu utanríkisráðherrans varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um Evrópusambandsaðild undir fundarliðnum fundarstjórn forseta fyrr í dag. Frétt af mbl.is Hitafundur í þinginu í dag Sökuð um „Evrópusambandsbrölt“ Sagði Diljá Mist Einarsdóttir t.a.m. að Þorgerður hefði ekki viðhaft lögbundið samráð við utanríkismálanefndina í tengslum við tillöguna. Þá hefði utanríkismálanefndin gert alvarlegar athugasemdir við að Þorgerður hafi ekki mætt á fund nefndarinnar í morgun þrátt fyrir óskir nefndarinnar. Sömuleiðis hefðu verið gerðar athugasemdir við að ekki hefði verið viðhaft opið samráð við almenning áður en tillagan var lögð fram eins og þó væri skylt samkvæmt gildandi ríkisstjórnarsamþykkt. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tók í sama streng og sakaði Þorgerði um að hafa falið „Evrópusambandsbrölt“ sitt fyrir þjóðinni sem og Alþingi. Fleiri þingmenn stjórnarandstöðunnar mættu með sömu gagnrýni í ræðustól forseta, þ.á.m. Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á. Andersen, svo einhverjir séu nefndir. Frétt af mbl.is Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Diljá Mist Einarsdóttir. mbl.is/Karítas Ekki til „fallegra samráð“ Þorgerður Katrín svaraði gagnrýninni með þeim hætti að benda á að eitt fallegasta samráð ríkisstjórnar hvers tíma gæti haft væri samráð við þjóðina. Skiptar skoðanir hefðu verið á aðild að ESB í áraraðir og því væri ekki til fallegra samráð heldur en að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá sagði hún þingmenn stjórnarandstöðunnar gera lítið úr störfum þingsins og benti á að málið ætti eftir að vera rætt á þingi sem og í utanríkismálanefndinni þar sem boðaðir yrðu sérfræðingar til þess að ræða frekar um málið. Seinna sagðist ráðherrann fá á tilfinninguna að allar ræður og upphrópanir stjórnarandstöðunnar ýttu undir sannfæringu hennar um að stjórnarandstaðan væri hrædd við þjóðina. „Í guðanna bænum, treystið þjóðinni,“ sagði ráðherrann. Margir þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu Þorgerði fyrr í dag. mbl.is/Karítas „Á endalausum fundum í Brussel að plotta“ Sagði Sigmundur Davíð ósvífni Þorgerðar vera takmarkalausa. „Ekki er nóg með það að hæstvirtur ráðherra neiti að mæta fyrir utanríkismálanefnd og kynna málið fyrr en að lokinni fyrri umræðu heldur kemur hæstvirtur ráðherra hér upp og segir að það þurfi í rauninni ekkert að ræða við utanríkismálanefnd af því að fallegasta samráðið sé samráðið við þjóðina. Þetta segir ráðherra sem er búin að vera á endalausum fundum í Brussel að plotta á bak við þjóðina, að undirbúa aðgerð sem þjóðin fékk fyrst að heyra eftir að erlendir fjölmiðlar höfðu upplýst um það eftir heimildarmönnum sínum í Brussel,“ sagði Sigmundur. „Mér finnst það koma úr hörðustu átt“ Þeirri gagnrýni svaraði hins vegar flokksbróðir Þorgerðar, Ingvar Þóroddsson, og sakaði hann Sigmund Davíð um „þvílíka ósvífni“ „Hér erum við að ræða að þjóðin fái að segja sitt um hvort eigi að halda áfram þeirri vegferð sem farið var af stað með árið 2009 og mér finnst það koma úr hörðustu átt frá háttvirtum þingmanni sem lofaði þjóðinni því í aðdraganda kosninga 2013 að hún fengi að segja sitt um hvort það ætti að halda áfram eða ekki og það var ekki gert. Það var sent eitthvað bréf og ekki í samráði við utanríkismálanefnd, ekki í samráði við Alþingi, ekki í samráði við þjóðina. Ef það eru ekki plott á bak við þjóðina þá veit ég ekki hvað það er.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » HK deildarmeistari Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Trump: „Ég er ekki ánægður með hann“ Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitafundur í þinginu í dag Heitir nýjum leiðtoga „óhagganlegum stuðningi“ Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Trump: „Ég er ekki ánægður með hann“ Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Sá handtekni starfsmaður verktaka Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Missti stjórn á bílnum vegna hálku Feimni við að leggja fyrir heimanám Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » HK deildarmeistari Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Trump: „Ég er ekki ánægður með hann“ Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minni væntingar, minni árangur „Ekkert í gangi sem bendir til þess að það styttist í gos“ Björgunarflug fyrir á fimmta tug Íslendinga Færð getur spillst hratt Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Sá handtekni starfsmaður verktaka Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Missti stjórn á bílnum vegna hálku Feimni við að leggja fyrir heimanám Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason