Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Klækjastjórnmál eða einlæg köllun?

Read Full Article →

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkisráðherra hefur skipað Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í embætti sendiherra til næstu fimm ára. Ekki hefur komið formlega fram hvert Þórdís verður send, en í anda sannra skvísu­stjórnmála skrifaði Ingveldur Anna Sigurðardóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi, undir færslu hennar á Facebook: „Hlakka til að koma í heimsókn í London,“ en breytti svo færslunni. ­Ýmsar kenningar eru uppi um af hverju Þorgerður Katrín skipar Þórdísi nú í embætti sendiherra. Hrafnarnir hafa heyrt að með þessu hafi Þorgerður viljað útiloka hættulegan keppinaut um formannssætið á næsta landsfundi Viðreisnar. Önnur kenning er sú að ráðabruggið sé runnið undan rifjum Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem lætur einskis ófreistað til að koma höggi á Dag B. Eggertsson, en með skipuninni er framtíð hlaðvarpsins Flekaskil, eða Útvarps Óðinsgötu eins og sumir kalla það, komin í algjört uppnám. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 21. apríl 2026.

Share this article