Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óttast að oftar þurfi að hverfa frá Akureyrarflugvelli í slæmu skyggni

Read Full Article →

Ákvörðun um að hætta notkun ratsjárbúnaðar á Akureyrarflugvelli hefur vakið talsverða óánægju flugrekenda. Bæjarstjóri segist hafa áhyggjur af áhrifum sem breytingarnar hafi á innanlandsflug. Á Akureyrarflugvelli var á dögunum tekinn í notkun langþráður nýr aðflugsferill, sem í einföldu máli á að auka öryggi við lendingar á vellinum, svo hægt sé að nálgast flugbrautina úr minni hæð með öruggum hætti þó skyggni sé lítið. Samhliða var ákveðið að slökkva á fimmtíu og fimm ára gamalli ratsjá, sem Samgöngustofa hafði fjallað um 2022 að uppfyllti ekki kröfur um flugöryggi. Það er þó ekki svo einfalt að annar búnaðurinn leysi hinn af hólmi, því flugvélarnar verða að vera búnar ákveðnum tækjum til að geta nýtt nýja aðflugið og eins þarf að þjálfa áhafnir í notkun þess. Ákvörðunin um að hætta notkun ratsjárinnar 19. mars síðastliðin var tekin í upphafi sama mánaðar, sem notendum flugvallarins þykir hafa komið heldur brátt að. Forsvarsmenn Norlandair segja þeim hafa verið greint frá breytingunni með tíu daga fyrirvara. Flugvélar í innanlandsflugi geta ekki nýtt nýja aðflugið „Þær vélar sem við erum með, Kingerinn og Twin-Otterinn þær uppfylla ekki þær kröfur fyrir það aðflug og í raun munu ekki gera, það er ekki til sá búnaður í vélarnar sem þarf til að þær geti flogið það aðflug“, segir Tómas Dagur Helgason, flugrekstrarstjóri hjá Norlandair. Þær vélar notar Norlandair til dæmis í flugi til Þórshafnar, Vopnafjarðar og til Grænlands. Hann segir ratsjánna hafa nýst þeim mjög vel þegar orðið hafi að nálgast flugbrautina í slæmu skyggni - hún „lækki lágmörkin“ - sem þýðir að flugmennirnir mega fara nær flugbrautinni í blindflugi. Norlandair sér fram á að breytingin hafi því þau áhrif að oftar þurfi frá að hverfa þegar skyggni er lélegt og sama segir flugstjóri í innanlandsflugi hjá Icelandair í viðtali við Morgunblaðið . Eins hefur Akureyri.net fjallað ítarlega um málið undanfarna daga. Bæði félög nota tegundir flugvéla í sem geta ekki nýtt nýja aðflugið, þó það sé kærkomið fyrir millilandaflug. Samgöngustofa taldi búnaðinn úreltan 2022 Samgöngustofa greindi Isavia frá því 2022 að ratsjái stæðist ekki kröfur, sem Isavia kom áleiðis til notenda flugvallarins, svo það hefur legið í loftinu um árabil að notkun hennar yrði hætt. Flugfélögin sögðust þó ekki eiga von á að fyrirvarinn yrði eins skammur og hann var, en þeim var greint frá í upphafi mánaðar að 19. mars yrði slökkt á tækinu. Hvað segir Samgöngustofa? Fréttastofa bað Samgöngu að skýra aðkomu sína að málinu. Því var svarað svona: Hvers vegna fer Samgöngustofa fram á að hætt sé að nota ratsjárbúnað á Akureyrarflugvelli? Í eftirliti Samgöngustofa árið 2022 var opnað frávik vegna notkunar ratsjár á Akureyrarflugvelli. Rekstraraðili flugumferðarþjónustu, Isavia ANS, lagði í kjölfarið fram úrbótatillögu sem sneri að því að hanna og taka í notkun breyttan aðflugsferil (úr suðri) sem ekki hvíldi á notkun ratsjárinnar, og í kjölfarið að taka ratsjána, sem ekki uppfyllti þær tækni- og rekstrarlegu kröfur sem gerðar eru til kögunarbúnaðar, úr notkun. Frestur til að gera úrbætur var framlengdur ítrekað af Samgöngustofu, skv. beiðnum rekstraraðila, allt frá upphaflegum fresti sem var í maí 2022, þar til 20. mars 2026. Niðurlagning búnaðarins á sér því langa forsögu en ljóst er að um er að ræða búnað sem uppfyllir ekki gildandi kröfur skv. reglugerðum um rekstur flugleiðsöguþjónustu, settum af ráðherra. Það var rekstraraðilinn, Isavia ANS, sem tók þá ákvörðun að taka ratsjána úr notkun. Hvernig er samskiptum ykkar við flugrekstraraðila háttað, hvenær voru þeir upplýstir um að búnaðurinn uppfyllti ekki ykkar kröfur? Samgöngustofa hefur átt regluleg samskipti við Isavia, rekstraraðila flugvallarins, bæði fyrir og eftir að frávikið var sett árið 2022 um að reglugerðir fælu í sér kröfu sem sýnt var að ratsjáin uppfyllti ekki. Árið 2023 upplýsti rekstraraðili um þá fyrirætlan sína að leggja niður ratsjána. Rekstraraðila flugvalla og flugumferðarþjónustu ber að viðhafa samráð við sína notendur, óháð þessu tilviki. Bæjarstjóri uggandi yfir áhrifum á innanlandsflug Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, hefur áhyggjur af breytingunni og á morgun verður málið rætt í bæjarráði. „Ég held að það hafi kannski verið einhver smá fljótfærni þarna í gangi eða að minnsta kosti ekki séð til þess að flugrekstraraðilar hér innanlands væru undirbúnir undir það að takast á við nýjan veruleika“, segir bæjarstjórinn. Samgöngustofa merkti gömlu ratsjánna sem frávik, í eftirliti sínu árið 2022. Árið 2023 hafi Isavia upplýst flugfélögin um að ratsjáin yrði tekin úr notkun, en fengu ítrekaða fresti frá Samgöngustofu til að leita annarra lausna. Isavia segir búnaðinn hafa verið lengi á leið út Isavia ku hafa upplýst flugfélögin þá um stöðuna og rætt málið í gegnum fundi og tölvupóst. Isavia hefur skýrt málið ítarlega á vefnum og segir í færslu sem þau birtu í dag, að ratsjáin hafi aðeins verið notuð í um 2-3% lendinga, sem þó telur um 100 skipti.

Share this article