Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Notkunin á ratsjáraðflugi lítil undanfarin ár

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.3.2026 | 15:05 Notkunin á ratsjáraðflugi lítil undanfarin ár Breytingarnar hafa áhrif á 2-3% ferða um Akureyrarflugvöll. mbl.is/Þorgeir Baldursson Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Notkunin á ratsjáraðflugi hefur verið lítil undanfarin ár, sérstaklega eftir innleiðingu bratta ILS-aðflugsins, og erfiðlega hefur gengið að viðhalda færni flugumferðarstjóra til að veita þjónustuna. Þetta kemur fram í svari Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Isavia Innanlandsflugvalla, vegna fréttar Morgunblaðsins í gær um að búið sé að slökkva á ratsjáraðflugsbúnaði á Akureyrarflugvelli. „Þess má geta að hvorki Easy Jet né millilandahluti Icelandair hafa viljað þjálfa ratsjáraðflugið. Undanfarin ár hefur verklagið og aðflugsferillinn sem um ræðir (ASR RWY 01) verið notaður um 100 sinnum á ári sem er á milli 2-3% af aðflugum en þar af er a.m.k. helmingur að beiðni flugumferðarstjóra í því skyni að viðhalda hæfni til að veita þjónustuna.“ Stífar og ítarlegar reglugerðir Sigrún segir rekstur flugleiðsögu bundinn í nokkuð stífar og ítarlegar reglugerðir. „Samgöngustofa, sem lögbært yfirvald, fylgist með hvernig og hvort Isavia uppfylli viðkomandi kröfur. Við úrvinnslu fráviksins var unnin greinargerð þar sem farið var yfir þær leiðir sem taldar voru mögulegar til að loka frávikinu. Greinargerðin var unnin með þátttöku helstu flugnotenda á Akureyrarflugvelli á þeim tíma. Verklagið var lagfært og óskað eftir framlengingu til lokunar fráviksins þar til annar kostur væri kominn í stað ratsjáraðflugsins. Framlengdur frestur til lokunar rann út 19. mars sl.“ Þegar nær dró gildistöku RNP AR-flugferla, og þar með lokun fráviksins með því að taka ratsjáraðflugið úr notkun, var haft samband við þá notendur sem eftir voru og óskað eftir stöðu hjá þeim. Í ljós kom að engir þeirra sem stunda reglubundið flug til og frá Akureyri voru tilbúnir að nota RNP AR og ekki Advanced RNP-flugferla heldur. „Í samtölum við Samgöngustofu vegna þessa kom í ljós að ekki yrði hnikað frá kröfum um að hætta notkun ratsjáraðflugsins á þeim forsendum að hvorki verklagið né búnaðurinn sjálfur uppfyllir ytri kröfur, í því sambandi var vísað í EU-reglugerð sem tók gildi á Íslandi í nóv. 2025 sem og þá reglugerð sem var í gildi þar á undan.“ Í apríl 2022 opnaði Samgöngustofa fyrir frávik frá reglugerðum vegna verklags flugturnsins á Akureyri til að aðstoða flugmenn, með aðstoð ratsjár, við notkun LOC/ASR-aðflugsferils fyrir flugbraut 01 á Akureyrarflugvelli. Verklagið hafði á sínum tíma verið unnið upp úr gömlum breskum reglum sem ekki eru lengur í gildi. Þórhildur Elín Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu gerði athugasemd við frétt Morgunblaðsins í gær þar sem fram kom að það hefði verið ákvörðun Samgöngustofu að slökkva á ratsjáraðflugsbúnaðinum. Það væri hlutverk Isavia innanlandsflugs. Aðflugsbúnaður Undanfarin ár hefur verklagið og aðflugsferillinn sem um ræðir verið notuð um 100 sinnum á ári. Það er á milli 2-3% af aðflugum og helmingur að beiðni flugumferðarstjóra í því skyni að viðhalda hæfni. Í samtölum við Samgöngustofu kom í ljós að ekki yrði hnikað frá kröfum um að hætta notkun ratsjáraðflugsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: KA-maðurinn ótrúlegi bestur Neitar að hafa tekið stúlku með sér um borð ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Notkunin á ratsjáraðflugi lítil undanfarin ár Fékk heilablóðfall eftir brottreksturinn Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Segir fjáraukalög hafa verið brotin Hátt í 100 björgunarsveitarmenn kallaðir út „Ég er harmi slegin“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar „Ég er harmi slegin“ „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Nýjast á mbl.is » Myndskeið: KA-maðurinn ótrúlegi bestur Neitar að hafa tekið stúlku með sér um borð ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Notkunin á ratsjáraðflugi lítil undanfarin ár Fékk heilablóðfall eftir brottreksturinn Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Starfsfólk sé ekki eitt með barni Flugslys í Kólumbíu – 80 um borð „Kommissarinn“ íslenskur Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar „Ég er harmi slegin“ „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“

Share this article