- What: Akureyrar airport has available capacity for more international flights.
- Impact: Isavia is willing to increase the number of international flights to Akureyrar.
Flugfél flugfélagsins easyJet á Akureyrarflugvelli.RÚV / Sölvi Andrason Afkastageta Akureyrarflugvallar fyrir millilandaflug er langt frá því að vera fullnýtt, segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla ehf. Flugfélögin easyJet og Transavia fljúga til Akureyrar á laugardögum og þriðjudögum. Sigrún Björk segir að vilji sé hjá Isavia til að fá fleiri millilandaflug til Akureyrar. Að sögn Sigrúnar getur flugvöllurinn annað átta millilandaflugum á dag þá daga þegar það eru þrjár innanlandsvélar en aðra daga séu níu flugtímar í boði fyrir millilandaflug. Engar aðrar brottfarir eru leyfðar innan 110 mínútna fyrir millilandaflugvélar með 80 sæti eða fleiri. Akureyri.net greinir svo frá.