Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
HIGH Attacks Mbl Innlent

Hamas-liðar á Höfðatorgi

This article describes a physical security incident involving suspected Hamas operatives in Reykjavik, where evidence from seized mobile phones includes imagery of the individuals handling AK-47 rifles and displaying Hamas insignia. The attack is being investigated as attempted murder, and some suspects are on Interpol's watchlist, indicating a potential international terrorism threat. The report highlights law enforcement concerns about this new reality and the infiltration of terrorist-linked individuals into the country.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.3.2026 | 6:00 Hamas-liðar á Höfðatorgi Árásin er sögð afar gróf og er hún rannsökuð sem tilraun til manndráps. Íslendingur særðist alvarlega og lá á gjörgæsludeild um tíma. mbl.is/Eggert Setja bókamerki Hluti þeirra manna sem handteknir voru eftir grófa líkamsárás í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík er grunaður um að tengjast vígasamtökum Hamas. Í farsímum þeirra fannst myndefni sem sýnir þá meðhöndla fjölskotariffla af gerðinni AK-47. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir þessu frá lögreglumönnum sem séð hafa myndefnið en vilja ekki koma fram undir nafni. Á myndefninu bera mennirnir merki Hamas-hryðjuverkasamtakanna, eins og það er orðað við Morgunblaðið. Myndefnið virðist hafa verið tekið á erlendri grund en mennirnir eru m.a. frá Palestínu. Frétt af mbl.is „Erum hægt og bítandi að ná utan um þetta“ Lögreglumennirnir segja lögregluna hafa verulegar áhyggjur af þróun mála hér á landi og að nýr veruleiki blasi við íslensku samfélagi. Umrædd líkamsárás hafi verið framin í því sem lögreglan kallar almenning og hefðu því almennir borgarar vel getað dregist inn í atburðarásina. Hafa þessir sömu lögreglumenn einnig talsverðar áhyggjur af eigin öryggi við störf sín og eru mjög tregir til að koma fram með upplýsingarnar en telja þó að samfélagið þurfi að átta sig á þessum nýja veruleika. Hluti mannanna er einnig á lista alþjóðalögreglunnar Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn, eftir því sem blaðið kemst næst. Frétt af mbl.is Er rannsakað sem tilraun til manndráps Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ræddi í Morgunblaðinu á laugardag um hættuna á komu hryðjuverkamanna til landsins. Þorbjörg Sigríður svaraði spurningu blaðsins um það þannig: „Við viljum ekki glæpamenn til landsins, við viljum ekki hryðjuverkamenn til landsins, það segir sig sjálft. Auðvitað á það ekki að geta gerst.“ Farsímagögn eru til skoðunar Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á rannsóknardeild, staðfestir að innihald farsíma mannanna sé til skoðunar. Hann vill hins vegar á þessari stundu ekki segja frá eðli þeirra gagna sem eru til rannsóknar eða hvort mennirnir hafi einhver tengsl við vígasamtök. Íslendingur særðist alvarlega í árásinni og lá á gjörgæsludeild um tíma. Aðrir sem máli þessu tengjast eru með ríkisfang í Svíþjóð, Palestínu og öðrum ríkjum Mið-Austurlanda. Árásin er sögð hafa verið afar gróf og er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Frétt af mbl.is Áttundi maðurinn í gæsluvarðhald Var um að ræða uppgjör í undirheimunum, samkvæmt heimildum blaðsins. „Það verður meiri skýrslutaka í þessu máli en við teljum okkur vera búin að ná nokkuð vel utan um rannsóknina,“ segir Ævar Pálmi. Vígamenn áður sótt um vernd Morgunblaðið hefur áður fjallað um hvernig greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur á undanförnum árum fengið upplýsingar um einstaklinga sem tengjast hryðjuverkasamtökum og að þeir hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi. Var meðal annars liðsmaður Ríkis íslams handtekinn á Akureyri. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ástríða og orka í kafaldsbyl Hamas-liðar á Höfðatorgi Óvíst um afdrif umsóknar Liverpool fær ekki krónu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Mest lesið Í gær Í vikunni Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Ástríða og orka í kafaldsbyl Hamas-liðar á Höfðatorgi Óvíst um afdrif umsóknar Liverpool fær ekki krónu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hryðjuverkamálið á dagskrá um miðjan maí Getur hæglega endað með gosi ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Keypti Heimskringlu fyrir metfé og efnir til keppni Mest lesið Í gær Í vikunni Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article