Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þingmaður krafðist svara sem lögregla hafði þegar veitt

Read Full Article →

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, kallaði eftir því úr ræðustól Alþingis í dag að lögreglan veitti skýrar upplýsingar um líkamsárás á Höfðatorgi í síðustu viku eftir frétt Morgunblaðsins í morgun um að árásarmennirnir hefðu tengsl við Hamas-samtökin og væru á lista Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn. Morgunblaðið telur sig hafa heimildir fyrir því að hópur Hamas-liða hafi staðið fyrir hnífstunguárás á Höfðatorgi á dögunum. Fjölmiðlum ber ekki saman um þetta atriði og er það sérstakt rannsóknarefni. Mikilvægast er að lögreglan greini almenningi grímulaust frá slíkum atburðum Sagði Karl Gauti undir liðnum störf þingsins. Lögreglan hafði rúmum þremur klukkustundum áður en þingmaðurinn kvaddi sér hljóðs í ræðustóli séð ástæðu til þess að senda fjölmiðlum sérstaka fréttatilkynningu vegna fréttar Morgunblaðsins. Þar var tekið fram að ekkert benti til þess að hinir grunuðu hefðu tengsl við Hamas-samtökin og það væri rangt að hinir sömu væru á lista alþjóðalögreglunnar Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn eins og blaðið sagði í fréttinni. Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Rannsókn málsins er annars í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar. Þetta var yfirlýsingin sem fjölmiðlum barst frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu klukkan rúmlega tólf. Frétt Morgunblaðsins í morgun vakti mikla athygli. Fréttastofa sendi strax í morgun samhljóða fyrirspurn á embætti ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytið; Hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu upplýst dómsmálaráðherra/ríkislögreglustjóra um að embættið hafi í haldi karlmenn í tengslum við hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi sem grunur leikur á að tengjast vígasamtökunum Hamas í Palestínu? Ef ekki; hyggst dómsmálaráðuneytið/ríkislögreglustjóri bregðast við frétt Morgunblaðsins í morgun og óska eftir upplýsingum um þá aðila sem grunaðir eru um aðild að árásinni á Höfðatorgi í ljósi þess að þar er fullyrt að hluti þeirra sé á lista alþjóðalögreglunnar Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn? Í svari ríkislögreglustjóraembættisins við fyrispurn fréttastofu er tekið undir yfirlýsingu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að ekkert bendi til þess að hinir grunuðu tengist Hamas og áréttað að það sé rangt að þeir séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn: Ríkislögreglustjóri og lögregluembættin starfa þétt saman þegar kemur að rannsóknum sakamála enda hefur embættið þar oft ákveðnu hlutverki að gegna þó þeir sinni ekki rannsókn sakamála. Þannig sinnir Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra samskiptum við erlend lögreglulið fyrir hönd lögreglu og tryggir þannig formlega og rétta upplýsingagjöf. Eins og fram kemur í tillkynningu frá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þá er á þessu stigi ekkert sem bendir til þess að hinir handteknu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu er vísað til yfirlýsingar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í hádeginu: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst um það í fjölmiðlum að ekkert bendi til þess að þeir sem handteknir voru vegna líkamsárásar í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin eða séu á lista yfir grunaða hryðjuverkamenn. Ráðherra fer með almennar eftirlits- og stjórnunarheimildir gagnvart undirstofnunum á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands en hefur ekki afskipti af einstökum málum sem eru til meðferðar hjá lögreglu eða ákæruvaldi sem eru að öllu leyti sjálfstæði í störfum sínum við meðferð sakmála og óháð hvers kyns póltískum afskiptum. Ráðherra fundar reglulega með ríkislögreglustjóra og þá á ráðuneytið í almennu reglulegu samstarfi við lögreglu og aðrar viðkomandi undirstofnanir um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og möguleg tengsl hennar við öfgahópa. Segir fréttamennsku Morgunblaðsins stórhættulega „Þetta er beinlínis hættulegt. Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg,” segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, um leið og hann veifaði Morgunblaði dagsins í ræðustól Alþingis. Hann velti fyrir sér á hvaða vegferð Morgunblaðið væri með fréttinni. „Það er sem sé verið að teikna upp þá mynd að það stafi ógn af öllum palestínskum flóttamönnum sem hafa leitað skjóls á Íslandi. Það er tilgangur þessarar fréttar.” Sigmundur Ernir hélt áfram: „Hún byggir á svo veikum heimildum að lögreglan á Íslandi þarf að draga hana til baka. Lögreglan á Íslandi þarf að draga til baka fréttaflutning Morgunblaðsins um Palestínumenn á Íslandi. Svona er komið fyrir blaðamennsku hér á landi, nánar tiltekið uppi í Hádegismóum. Þetta er hættulegt. Þetta eykur ekki öryggi íslenskra þegna.“

Share this article