Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Mogginn, löggan og allt hitt

Read Full Article →

Deila Efni fréttar Morgunblaðsins var í stuttu máli að grunur léki á því að einhverjir af ­mönn­unum sem handteknir voru eftir lífshættulega líkams­árás og tilraun til manndráps í bílakjallara Höfðatorgs um miðjan mars hefðu einhvers konar tengsl við hryðjuverkasamtökin Hamas. Þær grunsemdir voru sagðar byggjast á myndefni á símum einhverra mannanna, sem þar handléku hríðskotariffla og bæru merki Hamas. ­Fyrir þessu voru bornir ónafngreindir heimildarmenn í lögreglunni, sem hefðu séð myndir þessar. Einnig var rætt við Ævar Pálma Pálmason, aðstoðar­yfirlögregluþjón á rannsóknardeild, en hann vildi hins vegar ekki láta hafa neitt eftir sér undir nafni um rannsóknina annað en að farsímagögnin væru enn til ­skoðunar, en ekki hvers lögregla hefði orðið áskynja af þeim. Þá var í fréttinni hermt að eftir því sem blaðið ­kæmist næst væru einhverjir mannanna á lista Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article