Deila Efni fréttar Morgunblaðsins var í stuttu máli að grunur léki á því að einhverjir af mönnunum sem handteknir voru eftir lífshættulega líkamsárás og tilraun til manndráps í bílakjallara Höfðatorgs um miðjan mars hefðu einhvers konar tengsl við hryðjuverkasamtökin Hamas. Þær grunsemdir voru sagðar byggjast á myndefni á símum einhverra mannanna, sem þar handléku hríðskotariffla og bæru merki Hamas. Fyrir þessu voru bornir ónafngreindir heimildarmenn í lögreglunni, sem hefðu séð myndir þessar. Einnig var rætt við Ævar Pálma Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjón á rannsóknardeild, en hann vildi hins vegar ekki láta hafa neitt eftir sér undir nafni um rannsóknina annað en að farsímagögnin væru enn til skoðunar, en ekki hvers lögregla hefði orðið áskynja af þeim. Þá var í fréttinni hermt að eftir því sem blaðið kæmist næst væru einhverjir mannanna á lista Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift