Innlent | mbl | 25.3.2026 | 16:56 Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Birta Margrét Setja bókamerki Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, segir mikilvægt að lögreglan greini grímulaust frá atburðum líkt og þeim sem áttu sér stað í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík þar sem alvarleg líkamsárás átti sér stað fyrr í þessum mánuði. Í því samhengi vísaði hann í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag þar sem fram kemur að hluti þeirra sem handteknir hefðu verið vegna árásarinnar væru grunaðir um að tengjast vígasamtökunum Hamas, samkvæmt heimildum frá lögreglumönnum. Frétt af mbl.is Hamas-liðar á Höfðatorgi Þetta kom fram í ræðu hans í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag. Sagði hann fjölmiðlum reyndar ekki bera saman um þetta atriði, sem væri rannsóknarefni. Enginn fótur Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hafði áður stigið í pontu með Morgunblaðið í hendi, sagt engan fót vera fyrir fréttinni. Vísaði hann þar í tilkynningu sem lögreglan sendi frá sér í dag, í kjölfar fréttar Morgunblaðsins, um að ekkert benti til þess að þeir sem handteknir voru hefðu tengsl við Hamas-samtökin. Þingmaðurinn sagði fréttamennskuna stórhættulega og nefndi jafnframt að verið væri að teikna upp þá mynd að ógn stafaði af öllum palestínskum flóttamönnum sem hefðu leitað skjóls á Íslandi. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eyþór „Alræmd hryðjuverkasamtök“ Karl Gauti sagði í sinni ræðu að eins og allir vissu væru Hamas „alræmd hryðjuverkasamtök með ótal hryðjuverk, morð og illvirki á samviskunni“. „Fram hefur komið hjá lögreglu að allir hinir handteknu í málinu hafi lítil tengsl við landið, margítrekaðar viðvaranir ríkislögreglustjóra í skýrslum sem ég hef vakið athygli á hér á Alþingi og efnt til umræðu um hafa raungerst svo ekki verður um villst. Öllum má ljóst vera þvílík ógn stafar af slíkum hópum manna og hætta fyrir öryggi almennra borgara,“ sagði þingmaðurinn. Frétt af mbl.is Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Sagði hann þetta vera ástæðuna fyrir því að þær þjóðir sem hefðu verið að takast á við samtök á borð við Hamas og þekktu til þeirra, kæmi ekki til hugar að taka við fólki frá ákveðnum svæðum nema að undangenginni ítarlegri bakgrunnsskoðun sem væri einungis á færi fagmanna. Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Beita þarf tafarlaust brottvísunum þegar slíkir menn eiga í hlut. Hér duga engin vettlingatök. Grunaða menn vegna árása af þessu tagi þarf að sækja til ábyrgðar og síðan á að brottvísa og það dugir ekki að tala um neitt en tímabundið endurkomubann, engin endurkoma, punktur,“ sagði Karl Gauti. Auðtrúa og bláeyg stjórnvöld „Og hvað með þá tugi manna sem voru aukaleikarar á vettvangi og gætu orðið aðalleikarar í næstu árás? Hefur þeim verið fylgt úr landi?“ spurði hann svo. „Hér þarf aðgerðir, ekkert orðagjálfur eða athuganir eða að skoða málin. Brottvísanir. Frumskylda stjórnvalda á hverjum tíma er að gæta öryggis borgara landsins. Landamærunum hefur verið stjórnað af auðtrúa og bláeygum stjórnvöldum. Slíkt dugir ekki þegar öryggi landsmanna er í húfi.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bóka þarf bílastæði á Keflavíkurflugvelli um páskana “Calm before the storm”: Severe weather incoming ÍBV – KA kl. 18, bein lýsing Lopez skaut á Affleck á tónleikum Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhættan vegna stríðsins að breiðast út Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Bóka þarf bílastæði á Keflavíkurflugvelli um páskana “Calm before the storm”: Severe weather incoming ÍBV – KA kl. 18, bein lýsing Lopez skaut á Affleck á tónleikum Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Börnum fylgt í skóla og leikskóla á Suðurnesjum Dró til tíðinda í sjónvarpsútsendingu Loka endurvinnslustöðvum Sorpu vegna veðurs Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl