Engar breytingar urðu á stjórn Íslandsbanka á aðalfundi bankans í síðustu viku. Kom það ekki á óvart enda var stjórnin síðast kjörin fyrir um tveimur mánuðum síðan í kjölfar hluthafar sem boðað var til að beiðni einkafjárfesta með Heiðar Guðjónsson, stærsta einkafjárfestinn í hluthafahópi bankans, fremstan í flokki. Á umræddum hluthafafundi í janúar var Heiðar kjörinn stjórnarformaður en auk hans voru Haukur Örn Birgisson, Helga Hlín Hákonardóttir, Margrét Pétursdóttir, Stefán Pétursson, Stefán Sigurðsson og Valgerður Hrund Skúladóttir kjörin í stjórn bankans. Samsetning stjórnarinnar var í samræmi við tillögu tilnefningarnefndar Íslandsbanka. Tilnefningarnefndin lagði til óbreytta stjórn fyrir aðalfundinn og barst aðeins eitt framboð frá öðrum en stjórnarmönnum. Það var frá Breiðhyltingnum Hafþóri Úlfari Erlingssyni. Þar sem að fá fordæmi eru fyrir því að farið sé gegn tillögum tilnefningarnefnda hjá skráðum félögum var ljóst að á brattann yrði að sækja fyrir Hafþór Úlfar. Þrátt fyrir að hafa ekki hlotið náð fyrir augum hluthafa í þetta sinn vakti framboðsræða hans á fundinum nokkra athygli. Á mun stærri hlut en þorri stjórnar Í ræðunni fór Hafþór Úlfar um víðan völl og undir lok ræðunnar skaut hann föstum skotum á aðra frambjóðendur. Benti hann á að hann ætti mun stærri eignarhlut í bankanum en allir stjórnarmenn til samans, ef frá er talinn stjórnarformaðurinn Heiðar. Þegar nánar er að gáð má sjá að ábending Hafþórs Úlfars um að hann eigi mun ríkari persónulegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta en allir stjórnarmenn, utan formannsins, er rétt. Þannig á hann 382.884 hluti í Íslandsbanka og nemur markaðsvirði þeirra þegar þetta er skrifað rúmlega 50 milljónum króna. Til samanburðar eiga þau Haukur Örn, Helga Hlín, Margrét Pétursdóttir, Stefán Pétursson og Stefán Sigurðsson enga hluti í Íslandsbanka. Þess ber þó að geta að eiginkona Stefáns Péturssonar, Ingunn Guðrún Árnadóttir, á 28.153 hluti í bankanum og nemur markaðsvirði þeirra um 3,7 milljónum króna. Umræddan hlut keypti hún óvart í gegnum einkabankaþjónustu Arion banka í hlutafjárútboði Íslandsbanka síðasta sumar. Þá á Valgerður Hrund Skúladóttir 12.659 hluti í bankanum og nemur markaðsvirði þeirra þegar þetta er skrifað tæplega 1,7 milljónum króna. Eins og fyrr segir er stjórnarformaðurinn Heiðar Guðjónsson stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans en hann á alls 17.605.799 hluti í bankanum og nemur markaðsvirði þeirra um 2,3 milljörðum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .