Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heiðar: Ekki Ís­lands­banki sem sleit viðræðum

Read Full Article →

Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, áréttaði á aðalfundi bankans í dag að það hafi ekki verið stjórn Íslandsbanka sem sleit samrunaviðræðum bankans við Skaga. Í erindi sínu rakti Heiðar, sem kom inn í stjórnina í janúar, að stjórn Íslandsbanka hafi þann 6. október sl. undirritað skilmálaskjal við stjórn Skaga um samruna félaganna. Í því var grein 1.2 sem sagði: „Fyrirkomulag samruna aðila, eins og því er lýst í skilmálaskjali þessu, kann að taka breytingum með hliðsjón af frekari viðræðum, áreiðanleikakönnun aðila og hugsanlegum skilyrðum sem eftirlitsyfirvöld kunna að setja samrunanum.“ Hann sagði að þegar Seðlabankinn birti umræðuskjal þann 19. desember þar sem fram komu áform um að sérstakur eiginfjárauki myndi leggjast á banka sem ættu tryggingafélög hafi orðið forsendubrestur fyrir því að klára samrunasamning félaganna út frá því sem lagt hafði verið til grundvallar við undirritun 6. október. „Eins þurfti að ræða ólíka gengisþróun félaganna út frá uppfærðum arðsemishorfum líkt og orðalagið „frekari viðræður, áreiðanleikakönnun..." bar með sér,“ sagði Heiðar. Hann vísaði að þar til þess að í kjölfar þess að tilkynnt var um samrunaviðræðurnar þróaðist hlutabréfaverð Íslandsbanka og Skaga með mjög ólíkum hætti. Skipta­hlut­fallið í skilmála­skjalinu var 21,18 krónur á hlut í Skaga á móti 124 krónum á hlut í Ís­lands­banka. Til samanburðar var gengi Íslandsbanka 140 krónur en Skaga 19 krónur þegar viðræðunum var slitið 21. febrúar. Sjá einnig Sam­runa­viðræðum Ís­lands­banka og Skaga slitið Heiðar segir stjórn Íslandsbanka hafa sent formlegt erindi til Skaga 19. febrúar. Þar hafi eftirfarandi komið fram: „Stjórn Íslandsbanka ítrekar að bankinn sjái fjölda tækifæra við samruna félaganna, öllum hagaðilum til hagsbóta. Bankinn ítrekar því áhuga sinn á að halda áfram samtali við stjórn Skaga um skilmála samrunasamnings, með því markmiði að ljúka gerð endanlegs samnings, að teknu tilliti til þeirra atriða sem að mati bankans hafa breyst frá því viðræður hófust.“ „Svar Skaga við því erindi var á þá leið að félagið vildi senda tilkynningu á markað um slit viðræðna. Það var því ekki stjórn Íslandsbanka sem sleit viðræðunum,“ sagði Heiðar. Sjá einnig „Raunvirði félagsins nær 47 milljörðum“ Hann bætti þó við að samstarf Íslandsbanka og VÍS sé óbreytt þó að ekkert hafi orðið að undirritun samrunasamnings. Það hafi gengið vel og gagnist báðum aðilum og viðskiptavinum þeirra. Vogunarhlutfall íslenskra banka mjög hátt Í erindinu sagði Heiðar að það sem helst valdi sér áhyggjur í rekstrarumhverfi bankanna sé samkeppnisumhverfið „sem með gríðarlegum eftirlitskostnaði og flækjustigi gerir framþróun hægari en ella og skekkir þar með stöðu íslensks fjármálakerfis“. Hann nefndi sem dæmi að vogunarhlutfall íslenskra banka sé hátt í samanburði við aðra norræna banka. „Vogunarhlutfall bankans í árslok var 12,5% en sama hlutfall er 4,4% hjá Danske Bank, 5,7% hjá SEB og 5,1% hjá Nordea. Miðað við það mætti með öðrum orðum segja að bankinn sé með um 60% meira eigið fé en nefndir bankar. Lægri kröfur til eiginfjár bindingar banka hér á landi myndu aftur leiða af sér hagkvæmari rekstur og ódýrari þjónustu.“

Share this article