- What: Íslandsbanki and Skagi have terminated merger negotiations.
- Impact: The merger, which had been in progress since October, will not proceed.
Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga, sem á VÍS, Fossa og Íslensk verðbréf, hefur verið slitið. Þetta kemur fram í tilkynningum frá félögunum. Unnið hefur verið að samrunanum síðan í október. Að mati stjórnar Íslandsbanka „höfðu niðurstöður og greiningar úr ferlinu, þróun á markaðsvirði félaganna tveggja og væntar auknar eiginfjárkröfur Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds banka á tryggingafélagi leitt til þess að gera yrði breytingar á því gagngjaldi sem tilgreint var í skilmálaskjalinu til að gætt yrði að hagsmunum hluthafa Íslandsbanka.“ Stjórn Skaga taldi ekki að tillaga Íslandsbanka endurspegli ekki virði Skaga í sameiginlegu félagi. Því hafi félögin sammælst um að slíta viðræðum.