Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ekki einsdæmi

Read Full Article →

Eins og reiknað var með varð engin breyting á stjórn Íslandsbanka á aðalfundi. Hafþór Úlfar Erlingsson, sem var einn í framboði til stjórnar utan sitjandi stjórnarmanna, skaut föstum skotum á aðra frambjóðendur, að stjórnarformanni undanskildum, og benti á að hann ætti margfalt stærri hlut í bankanum. Íslandsbanki er langt því frá eina skráða fyrirtækið þar sem meginþorri stjórnarmanna er ekki hluthafar. Sem dæmi má nefna að í fimm manna stjórn Arion banka á aðeins einn af fimm stjórnarmönnum eignarhlut í bankanum. Umræddur stjórnarmaður, Steinunn Kristín Þórðardóttir, á þó aðeins 12 þúsund hluti í bankanum og nemur markaðsvirði þeirra um 2,1 milljón króna. Sjá einnig Fast skotið á aðal­fundi Ís­lands­banka Kristján vill ekki sjá tilnefningarnefnd Meirihluti félaga í Kauphöllinni hefur komið á fót tilnefningarnefnd sem veitir ráðgjöf við val á stjórnarmönnum. Það eru helst fyrirtæki í sjávarútvegi sem hafa ekki séð ástæðu til að setja slíka nefnd á fót og falla þar undir fyrirtæki á borð við Ísfélagið, Iceland Seafood, Brim og Hampiðjan. Öll fyrirtækin eiga það sameiginlegt að hafa stóra kjölfestufjárfesta innan sinna raða. Eins og Innherji greindi frá fyrr í vikunni var tillögu hóps lífeyrissjóða sem vildu að hafinn yrði undirbúningur að stofnun tilnefningarnefndar hjá Hampiðjunni hafnað á aðalfundi félagsins. Kristján Loftsson, aðaleigandi langstærsta hluthafans Hvals, sem á hátt í 37% hlut í Hampiðjunni, gagnrýndi tillöguna harðlega á fundinum og var hún felld með nærri 60% greiddra atkvæða. Tilnefningarnefndir og fyrirkomulagið í kringum þær hafa meðal annars verið gagnrýnd fyrir að það leiði stundum til þess að stjórnir séu þannig samsettar að fáir sem engir stjórnarmenn séu sjálfir hluthafar og eigi þannig ekki persónulegra fjárhagslega hagsmuna að gæta við störf sín. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article