Viðskipti | mbl | 28.4.2026 | 10:48 Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Íslandsbanki. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Stjórn Íslandsbanka hefur samþykkt nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Með breytingunum mun stöðugildum fækka um samtals 50 á árinu, en starfsfólki fækkaði um rúmlega 20 manns í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka til Kauphallarinnar. Segir þar að markmið breytinganna sé að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir og þannig efla þjónustu bankans við viðskiptavini enn frekar. Skipulagsbreytingunum sé ætlað að styrkja bankann í áframhaldandi sókn, þar sem stafræn þróun, aukin nýting gervigreindar og breyttar kröfur viðskiptavina kalli á nýja nálgun í rekstri og þjónustu. Stjórnendum fækkað um 15% í heild sinni á árinu „Með breytingunum er stjórnendum fækkað um 15% í heild sinni á árinu og forstöðumönnum um 20%. Þá fækkar aðalnefndum bankans úr ellefu í fjórar. Stofnað hefur verið nýtt stoðsvið, Stefnumótun og menning, sem mun stuðla að auknu samstarfi á milli annarra stoðsviða og styrkja áfram og þróa fyrirtækjamenningu bankans. Undir sviðið fellur lögfræðiþjónusta, mannauðsmál, markaðs- og samskiptamál, rekstrardeild auk stefnumótunar og sjálfbærni. Þá hafa verið gerðar breytingar á nöfnum viðskiptaeininga bankans á íslensku og bera þær nú heitin Einstaklingssvið, Fyrirtækjasvið og Fjárfestingarbankasvið. Með nafnabreytingunum er verið að skerpa á áherslum sviðanna. Starfsfólki fækkar um rúmlega 20 við breytingar dagsins og gætir fækkunar helst í stoðeiningum bankans. Í heild mun stöðugildum fækka um samtals 50 á árinu. Þar er tekið tillit til fækkunar vegna snemmloka sökum aldurs sem greint var frá í ársuppgjöri 2025. Íslandsbanki leggur áherslu á að staðið sé af ábyrgð og virðingu að breytingum sem þessum og að hlúið sé að því starfsfólki sem þær ná til,“ segir í tilkynningunni. Liður í að auka skilvirkni Þá mun kostnaður vegna starfslokana sem tilkynntar voru í dag koma til gjalda á öðrum ársfjórðungi og nema tæpum 260 milljónum króna. Kostnaður vegna afnáms snemmalokakerfis var gjaldfærður á árinu 2025. Gert er ráð fyrir að árlegur launakostnaður hjá Íslandsbanka dragist saman um u.þ.b. einn milljarð króna í kjölfar breytinganna. Áhrif þess munu fyrst koma fram í afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 og munu koma fram að fullu á árinu 2027. „Breytingarnar eru liður í því að auka skilvirkni, stytta boðleiðir og einfalda ákvarðanatöku. Þannig eflum við þjónustu við viðskiptavini og nýtum þau tækifæri sem felast í gjörbreyttu tækniumhverfi. Við höfum unnið markvisst að því að greina áhrif nýjustu tæknibreytinga á starfsemi bankans. Við ætlum ekki aðeins að fylgja þeirri þróun, heldur vera leiðandi í henni og nýta hana til að styrkja Íslandsbanka sem eitt af leiðandi þjónustufyrirtækjum landsins. Í þessum skipulagsbreytingum erum við að kveðja öflugt starfsfólk sem hefur lagt mikið af mörkum til bankans og við þökkum þeim kærlega fyrir mikilvægt framlag. Með þessum breytingum heldur Íslandsbanki áfram að þróa rekstur sinn, styrkja samkeppnishæfni og tryggja að skipulag og kostnaðargrunnur styðji við langtíma árangur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini,“ er haft eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Danir í leit að íslenskri spillingu Sigurður Már Jónsson Afturkallanir, dónar og listamenn Fleira áhugavert Daði Már: Kostar um hálfan milljarð Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Kristrún vill sjálf dæma Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Nefna nýjan sæstreng eftir Íslendingasögupersónu Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi Pistlar » Sigurður Már Jónsson Danir í leit að íslenskri spillingu Sigurður Már Jónsson Afturkallanir, dónar og listamenn Fleira áhugavert Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Dýrkeypt veikindahlutföll Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Nefna nýjan sæstreng eftir Íslendingasögupersónu Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi