Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Íslandsbanki í færsluhirðingu

Read Full Article →

Íslandsbanki býður fyrirtækjum nú upp á færsluhirðingu og þar með heildstæða lausn fyrir móttöku greiðslna, bæði í verslunum og á netinu. Með þessari nýju nýju þjónustu geta fyrirtæki sameinað greiðslumiðlun, bankaviðskipti og uppgjör á einum stað og einfaldað þannig daglegan rekstur. Færsluhirðing bankans er ætluð fyrirtækjum af öllum stærðum og styður við fjölbreytta greiðslumáta, þar á meðal helstu greiðslukort, Apple Pay og Google Pay, bæði í posa og í vefverslunum. Að sögn Daníels Arnar Atlasonar, deildarstjóra færsluhirðingar Íslandsbanka, er markmiðið að bæta greiðsluflæði, auka yfirsýn og mæta auknum kröfum um öruggar en jafnframt hraðar greiðslur. Með færsluhirðingu Íslandsbanka fái fyrirtæki daglegt uppgjör, í íslenskum krónum og fleiri myntum eftir þörfum, auk betri yfirsýnar yfir greiðslur og færslur. Lausnin tengist helstu afgreiðslu- og bókhaldskerfum, sem dragi úr handavinnu og einfaldi frágang og uppgjör í rekstri fyrirtækja. Spurður um hvers vegna Íslandsbanki hafi ákveðið að stíga inn á færsluhirðingarmarkað segir Daníel að bankinn hafi sterka stöðu á fyrirtækjamarkaði og viðskiptavinir hafi í auknum mæli kallað eftir því að hafa alla helstu þætti greiðslumiðlunar og bankaþjónustu á einum stað. „Með því að stíga inn á færsluhirðingarmarkaðinn getum við mætt þeirri þörf betur, einfaldað rekstur fyrirtækja og eflt þjónustuna með heildstæðri lausn.“ Hann segir það eitt af hlutverkum bankans að meta sífellt hvernig hægt sé að þróa og styrkja þjónustuframboðið til fyrirtækja. „Þar sem færsluhirðing er lykilþáttur í daglegum rekstri fjölmargra fyrirtækja þótti rökrétt skref að bæta henni við þjónustuframboðið og styrkja þannig alhliða bankaþjónustu Íslandsbanka til fyrirtækja. Með þessu teljum við okkur koma vel til móts við þessar þarfir og styrkja þjónustu við fjölbreyttan hóp fyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann.“ Einfaldar daglegan rekstur viðskiptavina „Markmiðið okkar er að geta boðið fyrirtækjum um land allt trausta og heildstæða bankaþjónustu. Með færsluhirðingu Íslandsbanka viljum við einfalda daglegan rekstur viðskiptavina, auka skilvirkni og veita þeim betri yfirsýn. Fyrirtæki bankans eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir, markmið og áskoranir, sem við viljum styðja við með lausnum sem skipta máli fyrir þau,“ segir Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækja hjá Íslandsbanka. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article