Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samstarf við reynslumikla aðila

Read Full Article →

Íslandsbanki býður fyrirtækjum nú upp á færsluhirðingu og þar með heildstæða lausn fyrir móttöku greiðslna, bæði í verslunum og á netinu. Með þessari nýju nýju þjónustu geta fyrirtæki sameinað greiðslumiðlun, bankaviðskipti og uppgjör á einum stað og einfaldað þannig daglegan rekstur. Færsluhirðing bankans er ætluð fyrirtækjum af öllum stærðum og styður við fjölbreytta greiðslumáta, þar á meðal helstu greiðslukort, Apple Pay og Google Pay, bæði í posa og í vefverslunum. Bankinn hefur byggt færsluhirðinguna upp í samstarfi við reynslumikla aðila á sviði greiðslumiðlunar. Samstarfsaðilar eru Nets, sem þjónustar yfir þrjár milljónir seljenda og er stærsti færsluhirðir Skandinavíu og Verifone á Íslandi, sem hefur áralanga reynslu af posa- og veflausnum. „Íslenski færsluhirðingarmarkaðurinn stendur framarlega í alþjóðlegum samanburði og kröfur fyrirtækja hér á landi eru miklar þegar kemur að öryggi, virkni og þjónustu. Það gerir það að verkum að samkeppnin er hörð og nú þegar er verið að bjóða upp á þróaðar lausnir,“ bendir Daníel Örn Atlason deildarstjóri færsluhirðingar Íslandsbanka, á. Hann segir samspil sterkrar bankaþjónustu og öflugra samstarfsaðila fyrst og fremst aðgreina greiðslulausn Íslandsbanka frá lausnum samkeppnisaðila. „Bankinn vinnur náið með Nets/Nexi og Verifone á Íslandi, sem búa yfir mikilli þekkingu og áralangri reynslu á sviði greiðslumiðlunar.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article