Íslandsbanki býður fyrirtækjum nú upp á færsluhirðingu og þar með heildstæða lausn fyrir móttöku greiðslna, bæði í verslunum og á netinu. Með þessari nýju nýju þjónustu geta fyrirtæki sameinað greiðslumiðlun, bankaviðskipti og uppgjör á einum stað og einfaldað þannig daglegan rekstur. Færsluhirðing bankans er ætluð fyrirtækjum af öllum stærðum og styður við fjölbreytta greiðslumáta, þar á meðal helstu greiðslukort, Apple Pay og Google Pay, bæði í posa og í vefverslunum. Daníel Örn Atlason, deildarstjóri færsluhirðingar Íslandsbanka, segir að á þeim stutta tíma sem sé liðin frá því að þjónustan var sett í loftið hafi viðtökurnar verið mjög góðar. „Margir viðskiptavinir hafa haft samband við okkur að eigin frumkvæði enda sjá þeir skýra hagræðingu í því að hafa alla þætti greiðslumiðlunar og bankaþjónustu á einum stað og þurfa ekki að eiga samskipti við marga aðila. Samhliða höfum við haft frumkvæði að því að kynna þessa nýju þjónustu fyrir okkar viðskiptavinum. Það er ljóst að viðskiptavinir fagna þessu skrefi bankans og við finnum fyrir góðum meðbyr. Sterk staða Íslandsbanka meðal fyrirtækja í verslun og þjónustu skiptir þar einnig máli og hefur auðveldað okkur að ná vel til markaðarins.“ Hann segir ekkert launungarmál að það skipti bankann miklu máli að geta boðið samkeppnihæf kjör. „Fyrirtæki verða að sjá skýran ávinning af því að velja eða skipta yfir í nýja lausn og þar spila bæði verð og þjónusta mikilvægt hlutverk. Við trúum því að samstarfið við Nets geri okkur kleift að bjóða samkeppnishæf kjör á gagnsæjan og skýran hátt. Um leið leggjum við ríka áherslu á hátt þjónustustig og persónulega ráðgjöf, sem við teljum skipta miklu máli í ákvörðun fyrirtækja um hvaða greiðslulausn þau velja.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .