Stjórn Íslandsbanka hefur samþykkt nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Breytingarnar fela í sér að starfsfólki bankans fækkar um rúmlega 20 við breytingar dagsins og gætir fækkunar helst í stoðeiningum bankans. „Í heild mun stöðugildum fækka um samtals 50 á árinu,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallarinnar. Með breytingunum er stjórnendum fækkað um 15% í heild sinni á árinu og forstöðumönnum um 20%. Þá fækkar aðalnefndum bankans úr ellefu í fjórar. „Markmið breytinganna er að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir og þannig efla þjónustu bankans við viðskiptavini enn frekar. Skipulagsbreytingunum er ætlað að styrkja bankann í áframhaldandi sókn, þar sem stafræn þróun, aukin nýting gervigreindar og breyttar kröfur viðskiptavina kalla á nýja nálgun í rekstri og þjónustu.“ Launakostnaður dragist saman um einn milljarð á ári Kostnaður vegna starfsloka sem tilkynnt voru í dag kemur til gjalda á öðrum ársfjórðungi og nemur hann tæpum 260 milljónum króna. Kostnaður vegna afnáms snemmalokakerfis var gjaldfærður á árinu 2025. Gert er ráð fyrir að árlegur launakostnaður hjá Íslandsbanka dragist saman um u.þ.b. einn milljarð króna í kjölfar breytinganna. Áhrif þess munu fyrst koma fram í afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 og munu koma fram að fullu á árinu 2027. „Íslandsbanki leggur áherslu á að staðið sé af ábyrgð og virðingu að breytingum sem þessum og að hlúið sé að því starfsfólki sem þær ná til.“ Íslandsbanki hefur stofnað nýtt stoðsvið, Stefnumótun og menning, sem bankinn segir að muni stuðla að auknu samstarfi á milli annarra stoðsviða og styrkja áfram og þróa fyrirtækjamenningu bankans. Undir sviðið fellur lögfræðiþjónusta, mannauðsmál, markaðs- og samskiptamál, rekstrardeild auk stefnumótunar og sjálfbærni. Þá hafa verið gerðar breytingar á nöfnum viðskiptaeininga bankans á íslensku og bera þær nú heitin Einstaklingssvið, Fyrirtækjasvið og Fjárfestingarbankasvið. Með nafnabreytingunum er verið að skerpa á áherslum sviðanna. „Breytingarnar eru liður í því að auka skilvirkni, stytta boðleiðir og einfalda ákvarðanatöku. Þannig eflum við þjónustu við viðskiptavini og nýtum þau tækifæri sem felast í gjörbreyttu tækniumhverfi. Við höfum unnið markvisst að því að greina áhrif nýjustu tæknibreytinga á starfsemi bankans. Við ætlum ekki aðeins að fylgja þeirri þróun, heldur vera leiðandi í henni og nýta hana til að styrkja Íslandsbanka sem eitt af leiðandi þjónustufyrirtækjum landsins,“ segir Jón Guðni Ómarsson , bankastjóri Íslandsbanka. „Í þessum skipulagsbreytingum erum við að kveðja öflugt starfsfólk sem hefur lagt mikið af mörkum til bankans og við þökkum þeim kærlega fyrir mikilvægt framlag. Með þessum breytingum heldur Íslandsbanki áfram að þróa rekstur sinn, styrkja samkeppnishæfni og tryggja að skipulag og kostnaðargrunnur styðji við langtíma árangur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.“