Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Byggt upp 1,9 milljarða hlut í Ís­lands­banka

Read Full Article →

Kjölur fjárfestingarfélag ehf., í eigu Guðmundar Inga Jónssonar og Þorláks Traustasonar, er orðið átjándi stærsti hluthafi Íslandsbanka með 0,79% hlut samkvæmt uppfærðum lista yfir stærstu hluthafa bankans. Kjölur átti 13,87 milljónir hluta í Íslandsbanka í lok mars. Markaðsvirði eignarhlutarins nemur um 1,9 milljörðum króna. Félagið er þar með orðið næst stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Íslandsbanka á eftir Heiðari Guðjónssyni, stjórnarformanni bankans, sem á 1,0% hlut. Stærstu hluthafar í lok mars 2026 Hluthafi Fjöldi hluta Í % LSR 154.780.425 8,83% Gildi lífeyrissjóður 141.920.244 8,10% LIVE 121.002.161 6,90% Brú lífeyrissjóður 83.034.746 4,74% Vanguard 79.945.623 4,56% Frjálsi lífeyrissjóðurinn 58.660.926 3,35% Almenni-Lífsverk 48.621.827 2,77% Kvika banki hf. 37.280.136 2,13% Stapi lífeyrissjóður 36.379.474 2,08% Birta lífeyrissjóður 30.512.971 1,74% Íslandsbanki hf. 21.861.379 1,25% Festa lífeyrissjóður 20.357.940 1,16% Landsbréf hf. 19.368.691 1,10% Folketrygdfondet 17.670.342 1,01% Ursus ehf. (Heiðar) 17.458.679 1,00% Eaton Vance 16.983.419 0,97% Arion Banki hf. 15.278.554 0,87% Kjölur fjárfestingarfélag 13.867.015 0,79% SL 14.821.434 0,85% Íslandssjóðir 13.113.229 0,75% Heimild: Íslandsbanki & Akkur Einnig með 3,5 milljarða hlut í Reitum Kjölur er einnig sjöundi stærsti hluthafi Reita fasteignafélags með 4,3% eignarhlut sem er um 3,5 milljarðar króna að markaðsvirði. Guðmundur Ingi ákvað í síðasta mánuði að hætta í stjórn Reita vegna óánægju með hvernig staðið var að vali á stjórnarformanni félagsins. Hann seldi allan 1% eignarhlut fjárfestingarfélags síns GJ Invest ehf. í Reitum. Sjá einnig „Ég er ekki að fara að selja þessa hluti á ein­hverri útsölu“ Á aðalfundi fasteignafélagsins greindi hann frá því að hann hefði hugsað sér að minnka stöðu sína í Reitum frekar, svo lengi sem hlutabréfaverð fasteignafélagsins sé ásættanlegt. Sama dag stækkaði Kjölur, sem hann á með Þorláki, hlut sinn í Reitum um 0,1 prósentustig sem Guðmundur rakti til þess að þeir telji gengi hlutabréfa fasteignafélagsins stórlega vanmetið.

Share this article