Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Breyttur hlut­hafa­hópur eftir sölu ríkisins

Read Full Article →

Tölu­verðar breytingar hafa orðið á eignar­haldi bankans eftir að ríkið seldi allan eftir­standandi hlut sinn í fyrra. Í desember var sam­setning OMXI15-vísitölunnar endur­skoðuð og varð Ís­lands­banki stærsta félagið í vísitölunni með um 18,9% vigt, sem undir­strikar breytta stöðu hans á markaði. Líf­eyris­sjóðir eiga þó ekki jafn stóran hlut í Ís­lands­banka og til dæmis Arion banka og þá eru verðbréfa­sjóðir einnig undir­vigtaðir, sem má rekja til þess fyrir­komu­lags sem haft var í út­boði ríkisins í fyrra, en þá fengu fag­fjár­festar nær engum bréfum út­hlutað. Jón Guðni segir eitt af verk­efnum næstu missera vera að breikka hlut­hafa­hópinn enn frekar, ekki síst er­lendis. „Við fengum mikla at­hygli í kringum söluna í maí og þegar við erum er­lendis hittum við fullt af fjár­festum. Margir voru mjög svekktir yfir því að hafa ekki fengið neitt, þá sér­stak­lega á Norður­löndunum, en við höfðum lagt mikla vinnu í að fá norræna langtíma­fjár­festa inn í hlut­hafa­hópinn. Þannig að núna er verk­efnið að reyna að fá ein­hverja af þeim inn á markaðinn,“ segir Jón Guðni. Hlut­hafa­hópurinn er þó í dag nokkuð vel sam­settur að hans mati. „Hlut­hafa­hópurinn okkar er um það bil 40% líf­eyris­sjóðir og 30% al­menningur. Inn­lendir og er­lendir fag­fjár­festar skipta á milli sín eftir­standandi 30% og þetta er orðin mjög góð blanda,“ segir hann. Hlut­hafar voru rúm 25 þúsund í lok árs 2025 og voru um 85,4 pró­sent hluta­fjár í eigu inn­lendra aðila og 14,6 pró­sent í eigu alþjóð­legra fjár­festa. Bandaríska sjóðstýringarfélagið Capi­tal Group, sem var lengi vel stærsti er­lendi fjár­festirinn í Ís­lands­banka, ákvað þó fyrir um tveimur mánuðum að hefja sölu á eignar­hlut sínum í bankanum en félagið átti 5,4% hlut þegar mest lét. Þrátt fyrir um­tals­verð endur­kaup hefur gengi Ís­lands­banka lækkað á árinu, sem markaðsaðilar hafa að veru­legu leyti rakið til stöðugs söluþrýstings frá Capi­tal Group, en fyrir­tækið losaði á endanum allan hlut sinn í síðustu viku. Sam­kvæmt heimildum Við­skipta­blaðsins voru líf­eyris­sjóðir og fag­fjár­festar á kaup­hliðinni. Jón Guðni segist þó ekki lesa of mikið í þá ákvörðun Capi­tal Group að selja sig út úr bankanum. „Þau komu inn á tölu­vert lægra gengi og það kemur ekki á óvart að þau vilji losa eitt­hvað um,“ segir hann. Gengi Ís­lands­banka hefur hækkað um 32% frá því að bankinn var skráður á markað í júní 2021 og Capi­tal Group kom inn í hlut­hafa­hópinn. Gengi krónunnar hefur einnig styrkst um rúm 11% gagn­vart Bandaríkja­dal síðastliðin þrjú ár, sem gæti haft áhrif. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér

Share this article