Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Erlend útlán Ís­lands­banka vaxa hratt

Read Full Article →

Alþjóð­leg útlán Ís­lands­banka hafa vaxið úr um 1,5% af lána­safni bankans í byrjun síðasta árs í 4,5% í lok fyrsta árs­fjórðungs. Bankinn gerir ráð fyrir að þessi hluti lána­safnsins verði 5 til 10% til framtíðar. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikningi Ís­lands­banka fyrir fyrsta árs­fjórðung sem birtist í gær. Útlán til við­skipta­vina jukust um 34 milljarða króna á fyrsta árs­fjórðungi, eða um 2,5%. Á árs­grund­velli jafn­gildir það um 10% vexti. Bankinn segir aukna áherslu á alþjóð­leg útlán hafa lagt sitt af mörkum til útlána­vaxtarins. Með alþjóð­legum útlánum á Ís­lands­banki við gjald­eyrislán til lán­taka utan Ís­lands. Fram kemur í árs­hluta­reikningnum að áherslan hafi einkum verið á lán til inn­viða­verk­efna, auk þeirrar fyrri stefnu bankans að lána til sjávarút­vegs­tengdra verk­efna. Í árs­hluta­reikningnum segir að vöxturinn hafi verið veru­legur eftir að áherslum bankans var breytt. Sam­tals námu útlán Ís­lands­banka til við­skipta­vina 1.401 milljarði króna í lok mars, saman­borið við 1.367 milljarða króna í lok síðasta árs. Lána­safnið er áfram að stærstum hluta inn­lent; íbúðalán til ein­stak­linga eru 43% af lána­safninu, fast­eigna­lán 10%, verslun og þjónusta 9%, byggingar­geirinn 7% og sjávarút­vegur 6%, sam­kvæmt fjár­festa­kynningu bankans. Sjá einnig Afkoma Íslandsbanka yfir mark­miðum og spám grein­enda

Share this article