Íslandsbanki segir skýrar vísbendingar um að langvarandi háir vextir og verðbólga séu farin að hafa áhrif á lánasafn bankans. Hlutfall lána með laskað lánshæfi hækkaði úr 1,5% í 2,0% á fyrsta ársfjórðungi. Virðisrýrnun fjáreigna nam 1.219 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 3 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Áhættukostnaður útlána var 35 punktar á ársgrundvelli, en bankinn miðar við að áhættukostnaður sé 20 til 25 punktar yfir hagsveifluna. Í fjárfestakynningu Íslandsbanka segir að aukning lána á þriðja stigi tengist meðal annars áhættuskuldbindingum í byggingargeiranum. Þar kemur jafnframt fram að sölutími nýrra íbúða sé enn langur og að nokkur byggingarverkefni hafi verið flokkuð á annað stig. Bankinn segir að aukningin í lánum með laskað lánshæfi tengist fyrst og fremst aðstæðum einstakra lántaka. Í árshlutareikningnum kemur fram að bankinn telji virðisrýrnun fjórðungsins ekki endurspegla breiðari veikleika í lánasafninu. Á sama tíma segir bankinn þó að áhrif langvarandi verðbólgu og hárra vaxta séu orðin sýnileg. Sölutími íbúðarhúsnæðis hafi lengst, vöxtur íbúðalána minnkað og þrýstingur aukist á byggingargeirann. Þrátt fyrir það segir bankinn eignagæði áfram almennt sterk og vísar til varkárrar lánveitingastefnu. Íbúðalánasafn bankans virðist þó enn standa nokkuð vel. Í fjárfestakynningu kemur fram að meðalveðsetningarhlutfall íbúðalána sé 56%, samanborið við 54% í árslok 2025. Þá eru um 94% lánasafnsins tryggð með veðum.