Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Yfir 25 milljarða hagnaður Íslandsbanka

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 13.2.2026 | 14:00 Yfir 25 milljarða hagnaður Íslandsbanka Arðsemi eigin fjár bankans var 11,2% á síðasta ári samanborið við 10,9% árið 2024. mbl.is/Eggert Jóhannesson Íslandsbanki hagnaðist um 25,2 milljarða króna á árinu 2025, einum milljarði meira en á árinu 2024. Arðsemi eigin fjár var 11,2% samanborið við 10,9% árið 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en lykiltölur úr uppgjöri fjórða ársfjórðungs og ársins 2025 hafa verið birtar. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 5,9 milljörðum króna, samanborið við 6,3 milljarða á sama tímabili 2024. Arðsemi eigin fjár á ársfjórðungnum var 10,5% en 11,2% á fjórða ársfjórðungi 2024. Frétt af mbl.is Arðsemi eigin fjár Íslandsbanka 10,9% á síðasta ári Útlán jukust en innlán drógust saman Hreinar vaxtatekjur bankans jukust um 11% milli ára og námu 52,5 milljörðum króna á árinu. Á fjórða ársfjórðungi námu þær 12,4 milljörðum króna og hækkuðu um einn og hálfan milljarð frá fyrra ári. Vaxtamunur jókst lítillega á fjórða ársfjórðungi frá fyrra ári, fór úr 2,7% í 2,9%. Hreinar þóknanatekjur jukust einnig milli ára og námu 14,1 milljarði króna á árinu 2025, sem er 7,4% hækkun milli ára. Á fjórða ársfjórðungi voru þær 4,2 milljarðar króna. Stjórnunarkostnaður nam 29,5 milljörðum króna á árinu 2025 samanborið við 27,6 milljarða árið áður, þegar stjórnvaldssekt var undanskilin. Kostnaðarhlutfall lækkaði engu að síður milli ára, fór úr 43,8% niður í 42,4%. Á fjórða ársfjórðungi var kostnaðarhlutfallið 43,5% samanborið við 45,7% ári áður, að teknu tilliti til einskiptisliða vegna starfsloka og leiðréttinga. Útlán til viðskiptavina jukust um 33,9 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi og námu alls 1.367 milljörðum króna í árslok. Innlán frá viðskiptavinum drógust hins vegar saman um 4% á fjórðungnum og námu 969 milljörðum króna í lok árs. Frétt af mbl.is Arion banki hagnaðist um 30,6 milljarða Helmingur hagnaðar greiddur út Eigið fé bankans nam 225,4 milljörðum króna í árslok. Eiginfjárhlutfall var 24% samanborið við 23,2% árið áður. Stjórn bankans hyggst leggja til við aðalfund að greiddur verði 12,6 milljarða króna arður, sem samsvarar um helmingi hagnaðar ársins og er í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Þá hefur bankinn fengið heimild til endurkaupa á eigin hlutum fyrir allt að 15 milljarða króna. Frétt af mbl.is Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða Yfirlýsingum fylgja aðgerðir Haft er eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, að árið 2025 verði minnisstætt, meðal annars fyrir sölu ríkissjóðs á eftirstandandi hlut sínum í bankanum og fjölgun hluthafa í kjölfarið. Afkoma ársins hafi verið góð og að bankinn hafi náð öllum helstu fjárhagslegu markmiðum sínum. Þá hafi hann tekið frekari skref í bestun eiginfjársamsetningar með útgáfu víkjandi skuldabréfa undir lok árs. „Bankinn hefur lýst sig reiðubúinn til þátttöku í uppbyggingu þarfra innviða hér á landi og þátttaka Íslandsbanka í fjármögnun á nýrri Ölfusárbrú er skýrt merki um að yfirlýsingum bankans í þeim efnum fylgi aðgerðir.“ Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er réttlætanlegt að fella kommúnistastjórn Kúbu? Sigurður Már Jónsson Noregur titrar vegna Epstein Fleira áhugavert Bindur vonir við að hægt verði að ná sáttum Hlutur vöggustofubarna verði réttur Pílustaður ekki íþróttamannvirki Þar sem enginn vill halda sín jól „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Bókhald geti verið sjálfvirkara Ræturnar í sveitinni mótuðu forstjórann Húsasmiðjan opnar nýja verslun í Reykjanesbæ Höggin mörg fyrir vöruútflutning Helmingur íbúðanna seldist fyrstu helgina Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin Spá 4,9% verðbólgu Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega í febrúar Arion banki hagnaðist um 30,6 milljarða „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin Ræturnar í sveitinni mótuðu forstjórann Spá 4,9% verðbólgu Arion banki hagnaðist um 30,6 milljarða Helmingur íbúðanna seldist fyrstu helgina Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega í febrúar Höggin mörg fyrir vöruútflutning Húsasmiðjan opnar nýja verslun í Reykjanesbæ Bókhald geti verið sjálfvirkara Dótturfélag Play gjaldþrota Helmingur íbúðanna seldist fyrstu helgina „Sá sem útskrifast er læknaður“ Hundruð útlendinga hafa gert kröfu í þrotabú Play Þórarinn hættir sem stjórnarformaður Reita Ríkissjóður fær nú A+ í einkunn „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Hörð samkeppni á kvikum markaði Þakklát Seðlabankanum Beint: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er réttlætanlegt að fella kommúnistastjórn Kúbu? Sigurður Már Jónsson Noregur titrar vegna Epstein Fleira áhugavert Hlutur þolenda verði réttur með bótum Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Framsókn kýs nýjan formann Valhöll verður afhent í sumar „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Bókhald geti verið sjálfvirkara Ræturnar í sveitinni mótuðu forstjórann Húsasmiðjan opnar nýja verslun í Reykjanesbæ Höggin mörg fyrir vöruútflutning Helmingur íbúðanna seldist fyrstu helgina Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin Spá 4,9% verðbólgu Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega í febrúar Arion banki hagnaðist um 30,6 milljarða „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin Ræturnar í sveitinni mótuðu forstjórann Spá 4,9% verðbólgu Arion banki hagnaðist um 30,6 milljarða Helmingur íbúðanna seldist fyrstu helgina Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega í febrúar Höggin mörg fyrir vöruútflutning Húsasmiðjan opnar nýja verslun í Reykjanesbæ Bókhald geti verið sjálfvirkara Dótturfélag Play gjaldþrota Helmingur íbúðanna seldist fyrstu helgina „Sá sem útskrifast er læknaður“ Hundruð útlendinga hafa gert kröfu í þrotabú Play Þórarinn hættir sem stjórnarformaður Reita Ríkissjóður fær nú A+ í einkunn „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Hörð samkeppni á kvikum markaði Þakklát Seðlabankanum Beint: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð?

Share this article