Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjármálakerfið traust en brýnt að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst

Read Full Article →

Fjármálakerfið stendur traustum fótum og þjóðarbúið er að mörgu leyti vel til þess fallið að mæta vaxandi óvissu í alþjóðlega efnahagskerfinu, versnandi verðbólguhorfum og hægari efnahagsumsvifum. Þetta segir fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands í yfirlýsingu sinni sem nefndin sendi frá sér í dag. Nefndin segir þó að áskoranirnar geti með tímanum reynt á fjármálastöðugleika. Hún telur mikilvægt að viðhalda viðnámsþrótti þjóðarbúsins gagnvart óvissu í alþjóðamálum og auka viðnámsþrótt kerfislega mikilvægra innviða. Kerfislega mikilvægir bankar búa að sterkri fjárhagsstöðu og hafa undanfarið endurfjármagnað erlendar skuldir á hagstæðum kjörum til lengri tíma en áður. Nefndin er afdráttarlaus um möguleika landsmanna til að greiða fyrir vöru og þjónustu. „Mikilvægt er að auka fjölbreytni í greiðsluleiðum hér á landi og að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst.“

Share this article