Seðlabankinn hefur lagt áherslu á kortagreiðslur án nettengingar um nokkurt skeið. Í ritinu Fjármálastöðugleiki, sem kom út í lok síðasta mánaðar, kom fram að unnið hafi verið með útgefendum greiðslukorta, færsluhirðum og alþjóðlegum kortaskemum að því að koma slíkum greiðslum á fót. Í svari Seðlabankans við fyrirspurn Viðskiptablaðsins segir að unnið sé að því að útfæra tvær leiðir fyrir kortagreiðslur án nettengingar. Annars vegar er um að ræða leið þar sem hægt verði að nota kortið sjálft, það er að segja plastkort með örgjörva, og slá inn pin númer. Unnt verður að nota þá leið ef rof verður á netsambandi, bæði til skemmri og lengri tíma, en netsambandið þarf að vera rofið af utanaðkomandi orsökum. Þá afmarkast verkefnið við verslanir sem selja nauðsynjavörur, það er matvöru, eldsneyti og lyf. Útfærsla sem bankinn hefur unnið að í samstarfi við útgefendur og færsluhirða nær til lögráða einstaklinga og allra debet- og kreditkorta. Miðað er við að heimild greiðslukorta verði að lágmarki 50 þúsund krónur. Hins vegar er um að ræða leið þar sem hægt væri að greiða snertilaust, það er með korti í síma eða snjallúri. Samkvæmt Seðlabankanum er vinna við útfærslu á aðferðinni að hefjast, en litið var til fyrirmynda á Norðurlöndum, einkum í Danmörku. Viljayfirlýsing hefur verið undirrituð af útgefendum og færsluhirðum og stendur undirbúningur yfir, þar sem horft er til tæknilegrar útfærslu og prófana. „Margir þeir aðilar sem taka þátt í verkefninu hafa þegar innleitt grundvallarvirkni til að unnt sé að innleiða kortagreiðslur án nettengingar. Það er meðal annars vegna þess að kortaskemu og færsluhirðar með starfsemi á Norðurlöndum hafa aðlagað sig að sambærilegum verkefnum þar,“ segir í svari Seðlabankans. Horft er til þess að plastkort sem gefin eru út frá og með 1. júlí næstkomandi hafi virkni til að framkvæma kortagreiðslur án nettengingar og að uppfærsla útgefinna korta verði möguleg á sama tíma. Aðilar hafi síðan svigrúm eftir þann tíma til nánari útfærslu og innleiðingar. Miðað er við að samtöl um snertilausar kortagreiðslur hefjist í næsta mánuði og að drög að samkomulagi liggi fyrir á komandi mánuðum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .