Menntamálaráðherra segir ráðuneytið á fleygiferð við að undirbúa viðbyggingar við fjóra verkmenntaskóla á landsbyggðinni. Skólameistarar segjast langþreyttir á biðinni – á meðan húsnæðisvandinn fari vaxandi. „Ég myndi segja það væri frekar bjart fram undan og verkefnið er tekið grafalvarlegum tökum í menntamálaráðuneytinu. Við erum í góðu og gegnu samtali við skólameistara þeirra skóla sem bíða eftir því að fá úrlausn sinna mála“, sagði Inga Sæland, menntamálaráðherra, eftir ríkisstjórnarfund í gær. Vorið 2023 kynnti þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, að byggja þyrfti allt að 12-16 þúsund fermetra undir verknám um land allt. Byrjað er að byggja við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og fram undan er bygging nýs Tækniskóla í Hafnarfirði. Fjórir verknámsskólar á landsbyggðinni; Verkmenntaskólinn á Akureyri, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki, Menntaskólinn á Ísafirði og Fjölbrautaskóli Suðurnesja í Reykjanesbæ, bíða hins vegar svara um hvenær verði hafist handa við stækkun þeirra skóla. Mörg hundruð er vísað frá verknámi á ári og nemum þessara skóla er í dag kennt í geymslum, færanlegum kennslustofum í gámum og öðrum tímabundnum úrræðum, til að reyna að koma sístækkandi árgöngum að. Í viðtali í febrúar sagði skólameistari VMA lítið um svör. „Ég veit ekki til þess að í mína rúma tvo mánuði í ráðuneyti hafi skort á því að vera í samtali. Það skortir engan vilja hér og við erum alveg á fleygiferð.“ Vonast til að brátt fari að birtast tímalína Skólameistarar skólanna fjögurra sögðu svipaða sögu þegar rætt var við þá í morgun, ýmis fyrirheit um að framkvæmdir hefðu átt til dæmis að hefjast á þessu ári eða því síðasta stæðust ekki - en eitt væri ljóst og það væri að framkvæmdir yrðu seinna en þeir hefðu kosið. Enda flestir þeirra flaggað húsnæðisvanda um árabil. Tíð ráðherraskipti hefðu eins ekki auðveldað vinnuna. Skólameistari FSS á fund með ráðuneytinu í dag og flestir vænta þeir þess að fá svör um hvenær verði byrjað að byggja í kringum páska. Hönnunarvinna er mislangt komin hjá skólunum. Skólameistararnir segjast allir hafa áhyggjur af mjög stórum árgöngum sem koma inn í skólana næstu misseri. Á Suðurnesjum hefur íbúafjöldi tvöfaldast á rúmum áratug og með því hefur nemendum FSS fjölgað hratt. Skólameistari þar segir brýna þörf á stærra húsnæði bæði fyrir bóknám og verknám.