Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Okkar vandi er ekkert leystur“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.4.2026 | 19:25 „Okkar vandi er ekkert leystur“ Kristján Ásmundsson skólameirstari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ljósmynd/Fjölbrautaskóli Suðurnesja Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki „Maður er búinn að heyra svo oft að þetta sé að fara af stað og annað og á einhverjum tímapunkti er maður bara búinn að fá nóg af slíku,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurnesja, FS, um fyrirhugaða uppbyggingu verknámsstöðu skólans. Kristján sagði starfi sínu lausu í dag eftir fund með starfsmönnum menntamálaráðuneytisins en greint hefur verið frá því að á fundinum hafi komið fram að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um tímasetningu eða annað varðandi viðbyggingu við skólann þrátt fyrir að ákvörðun um slíkt hafi verið tekin fyrir tveimur árum. Í kjölfar uppsagnarinnar tilkynnti menntamálaráðuneytið að unnið væri að uppbyggingu verknámsstöðu framhaldsskóla víðs vegar um landið og á meðal þeirra framkvæmda væri uppbygging FS. Frétt af mbl.is Telur nóg komið og hættir sem skólameistari „Í bullandi vandræðum“ „Þarna er bara verið að ræða aðstöðu fyrir starfs- og verknám. Það vantar alveg að útbúa aðstöðu, eða mæta okkar þörfum, varðandi almennt bóknám. Þar erum við í bullandi vandræðum, ekki síður heldur en með starfsnám,“ segir Kristján í samtali við mbl.is. Bendir hann á að skólinn nýti nú þrjá lausa gáma sem kennslustofur fyrir utan skólann og sé að leigja húsnæði á tveimur stöðum í bæjarfélaginu fyrir kennslu. Frétt af mbl.is Afsögnin „bein afleiðing“ aðgerðarleysis stjórnvalda „Okkar vandi er ekkert leystur“ Í tilkynningu menntamálaráðuneytisins segir að stefnt sé að því að ljúka verkinu fyrir sumarið 2028 og að kennsla gæti þá hafist í nýju húsnæði haustið sama ár. „Okkar vandi er ekkert leystur þó að það sé búið að tala um að flýta þessari tímalínu. Það var fyrst talað um 2029 og núna segja þau 2028. Þetta er eitthvað sem við höfum alveg heyrt en hvar eru teikningarnar? Hvar eru síðan framkvæmdir að fara af stað og annað? Það er það sem vantar. Maður er búinn að heyra svo oft að þetta sé að fara af stað og annað og á einhverjum tímapunkti er maður bara búinn að fá nóg af slíku. Það verður eitthvað að gerast. Ekki bara tala um hlutina. Áætlanir eru eitt en síðan er raunveruleikinn og það sem gerist – það er annað,“ segir Kristján. Frétt af mbl.is Starfsfólk FS krefst framkvæmda strax í sumar „Þeir vita það alveg“ Hann segir að því beri þó vissulega að fagna ef eitthvað sé að fara af stað í þessum efnum hjá ráðuneytinu en ítrekar að það leysi ekki vanda FS. „[Vandinn] er meiri en bara starfs- og verknám og þeir vita það alveg.“ „Þetta snýst ekkert um mína persónu. Þetta snýst um kennslu og aðstöðu fyrir nemendur þarna suðurfrá og það er það sem þarf að bæta,“ segir Kristján að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KR - Keflavík, staðan er 0:0 „Okkar vandi er ekkert leystur“ Lærisveinar Sigurðar Ragnars skoruðu sjö „Stórkostlegur listamaður“ Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Mikill meirihluti vill yfirráð auðlinda Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Lokaðir inni um óákveðinn tíma Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » KR - Keflavík, staðan er 0:0 „Okkar vandi er ekkert leystur“ Lærisveinar Sigurðar Ragnars skoruðu sjö „Stórkostlegur listamaður“ Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Sigmundur Davíð lét ekki segjast Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article