Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur brugðist við uppsögn skólameistara Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum með því að segja að unnið sé að uppbyggingu verknámsaðstöðu við fjóra framhaldsskóla. Kristján Ásmundsson skólameistari tilkynnti á starfsmannafundi í gær að hann hygðist hætta. Hann sagði að lengi hefði verið þrýst á um úrbætur í húsnæðismálum en ekkert hefði orðið af framkvæmdum. Hann hætti því vegna óánægju með húsnæðismál skólans. Starfsfólk skólans sendi frá sér yfirlýsingu síðar í gær þar sem það fordæmdi að ekkert hefði þokast í úrbótum á húsnæðinu. Starfsfólkið skoraði á mennta- og barnamálaráðuneytið að standa við gefin loforð og hefja framkvæmdir við stækkun skólans strax í sumar. Ráðuneytið hefur brugðist við á heimasíðu sinni. Þar segir að hanna eigi viðbyggingu í júní og hefja framkvæmdir við nýbyggingu í janúar á næsta ári. Ráðgert er að ljúka uppbyggingunni sumarið 2028 og hefja kennslu sama haust. Einnig eru boðaðar framkvæmdir á húsnæði fyrir verknám við Verkmenntaskólann á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólann á Ísafirði. Ráðuneytið segir að til séu uppsafnaðar fjárheimildir sem nýtist við fjármögnun framkvæmdanna. Það séu bæði fráteknar fjárheimildir fyrri ára og fjárheimildir í fjármálaáætlun.