Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, tilkynnti starfsfólki skólans í morgun að hann hyggist láta af störfum. Hann hefur starfað við skólann í 40 ár og verið skólameistari í tæp fjórtán. „Það er bara í rauninni húsnæðismál. Við erum búin að berjast lengi í þessu,“ segir Kristján í samtali við RÚV um ástæður starfsloka sinna. Hann vísar til þess að fyrir tveimur árum hafi menntamálayfirvöld ákveðið að ráðast í viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám við fjóra framhaldsskóla, þar á meðal Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Það þarf sárlega að bæta úr aðstöðu fyrir almennt bóknám líka. Við erum að kenna í þremur gámum fyrir utan og leigjum síðan tvær aðrar stofur undir aðra kennslu annars staðar í bænum.“ Kristján segir að enn hafi ekkert gerst. „Það er alltof lítið að þokast í þessum efnum. Maður er búinn að standa of lengi í þessu og er ekki enn farinn að sjá árangur þó að ráðuneytið segi að unnið sé í þessu.“ Kristján segir að menn ættu að vera farnir að sjá einhvern árangur tveimur árum eftir að ákveðið var að byggja viðbótarhúsnæði. Úr því sem komið er telur hann best að annar taki við og berjist fyrir úrbótum á húsnæðinu. Hann segir þörfina mikla og bendir á að íbúafjöldinn hafi tvöfaldast síðan síðasta viðbygging var tekin í notkun 2004. „Aðstaðan fyrir nemendur er ekki boðleg.“