Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Telur nóg komið og hættir sem skólameistari

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.4.2026 | 12:49 Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Kristján Ásmundsson skólameirstari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ljósmynd/Fjölbrautaskóli Suðurnesja Setja bókamerki Kristján Ásmundsson skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur sagt starfi sínu lausu. Ákvörðunina tók hann eftir fund með starfsfólki menntamálaráðuneytisins í morgun. Þetta kemur fram í Facebook-færslu á síðu skólans. Kristján á eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum en hann hóf störf við skólann árið 1986 og er því að ljúka 40. starfsári sínu. „Kristján tilkynnti starfsfólki skólans ákvörðun sína í fundartíma í morgun. Starfsfólki var mjög brugðið við þessar fréttir og felldu margir tár. Kristján hefur verið farsæll stjórnandi við skólann til fjölda ára og notið virðingar og vinsælda meðal starfsfólks,“ segir í færslunni. Engin ákvörðun um bætta aðstöðu „Að sögn Kristjáns var hann á fundi með starfsfólki menntamálaráðuneytisins í morgun um fyrirhugaða viðbyggingu við skólann. Ákvörðun um viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám við fjóra framhaldsskóla var tekin fyrir tveimur árum. Á fundinum með ráðuneytisfólki kom fram að engar ákvarðanir hafa verið teknar um tímasetningu eða annað varðandi viðbyggingu við skólann,“ segir í færslunni. „Því er ljóst að skólinn þarf að bíða enn um sinn eftir úrbótum varðandi húsnæði fyrir verk- og starfsnám en einnig bóknám og aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk. Skólinn nýtir nú þrjá lausa gáma sem kennslustofur og leigir húsnæði á tveimur stöðum í bæjarfélaginu fyrir kennslu.“ Harmar áhugaleysi stjórnvalda Þá segir að einnig sé búið að breyta geymslum í kennsluaðstöðu og breyta bóknámsstofum í verklega aðstöðu. „Í skólanum er mjög stór starfsbraut og mikill fjöldi nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Skólastarfið er því mjög fjölbreytt og mikilvægt fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Nú þegar farið er að þrengja að á öllum sviðum varðandi húsnæði skólans er aðstöðuleysi farið að hafa veruleg áhrif á skólastarfið og starfsemi skólans. Kristján telur nóg komið og hefur ákveðið að hætta störfum við skólann. Hann telur að hann komist ekki lengra með þetta mál og harmar áhugaleysi stjórnvalda á málefnum skólans.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Beint: Ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum Framsókn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum Simmi Vill kaupir Mosfelling Lögsótt fyrir viðskiptasvik? Kanna áhrifin af lagasetningunni Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lágar álögur og vaxandi samfélag Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Lokaðir inni um óákveðinn tíma Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað „Ég mun ekki reka þannig pólitík“ Óábyrgt að fara að lofa einhverju Bandaríkjaher skoðar aðstæður í Narsarsuaq Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Beint: Ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum Framsókn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum Simmi Vill kaupir Mosfelling Lögsótt fyrir viðskiptasvik? Kanna áhrifin af lagasetningunni Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Engin stemning fyrir flokkshroka Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað „Ég mun ekki reka þannig pólitík“ Óábyrgt að fara að lofa einhverju Bandaríkjaher skoðar aðstæður í Narsarsuaq Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article