Innlent | mbl | 25.3.2026 | 21:19 Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins mælist eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan vonskuveður sem spáð er á morgun, fimmtudaginn 26. mars, gengur yfir. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Vonskuveður á fimmtudag hefur áhrif á þjónustu Reykjavíkurborgar á ýmsum sviðum. Veruleg röskun verður til að mynda á skólastarfi og eru foreldrar beðnir um að senda tölvupóst ef börnin þeirra munu fara í skólann á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg . Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins mælist eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan vonskuveður sem spáð er á morgun, fimmtudaginn 26. mars, gengur yfir. Allt tiltækt starfsfólk vetrarþjónustunnar verður að störfum í nótt um leið og snjóa tekur, sem veðurspár gefa til kynna að hefjist um klukkan 5:00. Áhersla á að þjónusta við viðkvæma hópa skerðist ekki Eins og segir í tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins má gera ráð fyrir að veðrið verði orðið skaplegt strax eftir hádegi og er lagt til að fólk fresti ferðum sínum fram að þeim tíma að minnsta kosti. Með þessu móti gefst líka miklu betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, enda er slíkt afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð. Frekari upplýsingar varðandi færð og veður má nálgast á upplýsingasíðum Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar. Einhver röskun verður á þjónustu Reykjavíkurborgar á meðan versta veðrið gengur yfir og veðurviðvörun er í gildi. Áhersla verður lögð á að koma í veg fyrir að þjónusta við viðkvæma hópa skerðist ekki. Þjónustuver Reykjavíkurborgar verður opið á hefðbundnum tíma og verður hægt að hafa samband í gegnum síma eða netspjall. Tilkynni skólastjórnendum um komu barna í leik- og grunnskóla Veruleg röskun verður á skólastarfi. Í grunn- og leikskólum verður eingöngu lágmarksopnun með fáu starfsfólki. Þau sem nauðsynlega þurfa að fara með börn sín í grunnskóla og leikskóla eru beðin um að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti. Hefðbundið leikskóla- og frístundastarf hefst eftir að viðvörun fellur úr gildi. Fólk er hvatt til að fylgjast með fjölmiðlum. Neyðarskýlin opin yfir daginn Velferðarþjónusta Reykjavíkurborgar verður með eftirfarandi hætti á morgun: Heimaþjónusta – Tafir gætu orðið á heimaþjónustu Reykjavíkurborgar. Þjónustu verður forgangsraðað eftir mikilvægi. Félagsstarf – Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs verða opnar en gera má ráð fyrir röskun á dagskrá. Matarþjónusta – Veður hefur ekki áhrif á heimsendingu matar, þar sem matur er sendur heim á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Stefnt er að því að hafa matarþjónustu í félagsmiðstöðvum, sé þess kostur. Málaflokkur heimilislausra – Neyðarskýlin þrjú fyrir heimilislaust fólk loka ekki milli 10 og 17 eins og vant er, heldur stendur gestum til boða að vera inni yfir daginn. Málaflokkur fatlaðs fólks – Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk verður í lágmarki og því ljóst að veruleg röskun verður á starfi meðan veðurviðvörun er í gildi. Aðrir starfsstaðir – Önnur starfsemi velferðarsviðs verður með hefðbundnum hætti. Miðstöðvar Reykjavíkurborgar verða opnar en fólk er eindregið hvatt til þess að nota símann frekar en að koma á staðinn í dag. Síminn er 411-1111. Sundlaugar og söfn opna að veðrinu yfirstöddu Söfn og menningarhús - Búist er við að söfn og menningarhús borgarinnar, þar með talin bókasöfn, listasöfn, borgarsögusöfn, og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, muni opna á fimmtudag eftir að veðurviðvörun fellur úr gildi. Sundlaugar og Ylströndin – Sundlaugar Reykjavíkurborgar verða lokaðar á meðan appelsínugul veðurviðvörun er í gildi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valur vann eftir framlengingu og spennu Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Boðar tillögu um sjálfakandi bíla Lítið samfélag í sárum eftir tvö dráp Haukar deildarmeistarar eftir stórsigur Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Alls ekki eðlilegt“ „Það er allt undir í svona rannsókn“ Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Áætlanir um skólahald skýrist fyrir kvöldmat Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Grunnskólarnir verða opnir þrátt fyrir röskun Óvíst um afdrif umsóknar Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Valur vann eftir framlengingu og spennu Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Boðar tillögu um sjálfakandi bíla Lítið samfélag í sárum eftir tvö dráp Haukar deildarmeistarar eftir stórsigur Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Börnum fylgt í skóla og leikskóla á Suðurnesjum Ætla sér að tryggja yfirráð Íslands Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Grunnskólarnir verða opnir þrátt fyrir röskun Óvíst um afdrif umsóknar Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl