- What: Reykjavíkurborg has announced changes to preschool matters.
- Impact: The changes are being presented at a press conference.
Reykjavíkurborg hefur boðað til blaðamannafundar í dag þar sem á að kynna Reykjavíkurleiðina svokölluðu í leikskólamálum. Í tilkynningu segir að hún feli í sér töluverðar breytingar. Útsendingu má sjá hér að neðan. Reykjavíkurborg boðar töluverðar breytingar á leikskólamálum. Þær eru kynntar á blaðamannafundi sem hefst kl 11 í Ráðhúsinu. Í síðustu viku sendu 63 leikskólastjórar í borginni frá sér kröfu um aðgerðir borgarstjórnar til að bæta stöðuna í leikskólum. Stjórnendur allra leikskóla í borginni sögðu þolinmæðina vera á þrotum og kröfðust þess að tímasett aðgerðaáætlun yrði sett fram. Reykjavíkurleiðin svokallaða var kynnt í október með breyttri gjaldskrá og fjárhagslegum hvötum til að foreldrar nýttu einungis þá dvalartíma sem þeir þyrftu. Breytingarnar áttu að taka gildi um áramót. Þær vöktu hörð viðbrögð og var gildistöku þeirra frestað meðan á samráði stóð.