Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 25.3.2026 | 23:05 Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Nemendur úr Borgarholtsskóla hafa búið til bragðbættan harðfisk. Frá vinstri eru nemendurnir Anna Margarita Ólafsdóttir, Arthur Goði Höskuldsson, Hilmar Elís Ragnarsson og Alexander Fannar Hallsson. Samsett mynd/Ljósmyndir aðsendar. Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Fæstir tengja bragðtegundir á borð við chili, papriku og sýrðan rjóma og lauk við harðfisk. Það gæti þó breyst ef hugmynd fjögurra nemenda úr Borgarholtsskóla nær alla leið á markað. Nemendurnir, þau Alexander Fannar Hallsson, Arthur Goði Höskuldsson, Hilmar Elís Ragnarsson og Anna Margarita Ólafsdóttir, eru á lokaári á viðskiptabraut og standa að baki þremur nýjum bragðtegundum af harðfiski. Vöruna kalla þau Harka. Komust í samband í gegnum gamlan sjómann „Fiskurinn er tilbúinn og nú bíðum við bara eftir pakkningunum. Þær eru á leiðinni frá Ítalíu,“ segir Alexander. Hann bætir við að ætlunin sé að senda vöruna í frumkvöðlakeppni fyrir framhaldsskólanemendur. Hugmyndin kviknaði í gegnum starf hans í mötuneyti Borgarholtsskóla, þar sem hann komst í samband við harðfisksfyrirtækið Stjörnufisk í Grindavík. „Ég er að vinna í mötuneytinu í Borgarholtsskóla með manni sem heitir Atli og er gamall sjómaður. Hann þekkir Lalla, (Þorlák Halldórsson), sem er hjá Stjörnufisk í Grindavík. Við fengum að gera þetta hjá honum og það hjálpaði okkur heilan helling,“ segir hann. Vinsælustu snakktegundirnar Bragðtegundirnar voru valdar með vinsældir snakks í huga. „Þetta eru vinsælustu bragðtegundirnar á snakkmarkaðnum. Ef þetta er vinsælt í snakki, af hverju þá ekki í harðfiski líka?“ segir Alexander. Að sögn hans hefur þegar verið framleitt um sex kíló af harðfiski, sem hann gefur sjálfur hæstu einkunn. „Hann er æðislegur, bragðmikill og góður,“ segir hann. Formúlan leyndarmál Nemendurnir komu sjálfir að framleiðslunni og flökuðu fiskinn í verksmiðjunni hjá Þorláki, þar sem þeir fengu jafnframt sýnikennslu í hreinlæti. „Svo krydduðum við fiskinn ferskan áður en hann fór í þurrkun,“ segir Alexander, en tekur fram að uppskriftin verði ekki gerð opinber. „Formúlan er leyndarmál.“ Hann segir Þorlák hafa tekið verkefninu vel. „Lalla fannst þetta mjög gott og við erum mjög þakklát fyrir að hafa hann með okkur í liði,“ segir hann. Vilja fá unglinga í harðfiskinn Að hans sögn má rekja kveikjuna að verkefninu til þess að margir unglingar forðist harðfisk, þrátt fyrir að hann sé mjög hollur. „Það er 75–85% prótein í harðfiski og hann er hollur fyrir alla. Við erum unglingar og vonumst til að fleiri á okkar aldri fari að borða hann,“ segir Alexander. Draumurinn að stofna fyrirtæki Markmið nemendanna er að koma vörunni á markað og stofna eigið fyrirtæki. „Ef þetta gengur vel væri frábært að komast inn í Krónuna, Bónus eða Hagkaup,“ segir hann. Afrakstur vinnunnar verður kynntur á frumkvöðlakeppni JA í apríl, þar sem framhaldsskólanemar víða af landinu kynna hugmyndir sínar. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvað setti Gaza-stríðið af stað? Sigurður Már Jónsson Sjálfsmörk ríkisstjórnarinnar Fleira áhugavert Íranar segjast hafa neytt Lincoln til að færa sig Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka „Alls ekki eðlilegt“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Beint: Ásgeir fer yfir málin Katrín Jakobs­dóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Landsbankinn hækkar vexti Harpa tapaði 138 milljónum Kristrún á skjön við Seðlabanka Freyr nýr viðskiptastjóri hjá SI Katrín Jakobs­dóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Harpa tapaði 138 milljónum Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Kristrún á skjön við Seðlabanka Freyr nýr viðskiptastjóri hjá SI Landsbankinn hækkar vexti Hlutabréf lækka á Íslandi í takt við alþjóðlega óvissu Fréttaskýring: Situr Japan á vaxtasprengju? Vínverslun Hagkaups vel tekið „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru Katrín Jakobs­dóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Kristrún á skjön við Seðlabanka Landsbankinn hækkar vexti Þreföld eftirspurn fyrsta daginn Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Halda vöxtum óbreyttum Greiðir 34,9 milljarða í arð Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvað setti Gaza-stríðið af stað? Sigurður Már Jónsson Sjálfsmörk ríkisstjórnarinnar Fleira áhugavert Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Börnum fylgt í skóla og leikskóla á Suðurnesjum Áætlanir um skólahald skýrist fyrir kvöldmat Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Beint: Ásgeir fer yfir málin Katrín Jakobs­dóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Landsbankinn hækkar vexti Harpa tapaði 138 milljónum Kristrún á skjön við Seðlabanka Freyr nýr viðskiptastjóri hjá SI Katrín Jakobs­dóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Harpa tapaði 138 milljónum Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Kristrún á skjön við Seðlabanka Freyr nýr viðskiptastjóri hjá SI Landsbankinn hækkar vexti Hlutabréf lækka á Íslandi í takt við alþjóðlega óvissu Fréttaskýring: Situr Japan á vaxtasprengju? Vínverslun Hagkaups vel tekið „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru Katrín Jakobs­dóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Kristrún á skjön við Seðlabanka Landsbankinn hækkar vexti Þreföld eftirspurn fyrsta daginn Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Halda vöxtum óbreyttum Greiðir 34,9 milljarða í arð

Share this article