Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Úkraínski herinn gerir umfangsmiklar árásir í Leningrad-héraði

  • What: Ukrainian military conducts large-scale drone attacks on Russian targets
  • Impact: Disruption of transportation and energy infrastructure in the Leningrad region
Read Full Article →

Pétursborg í Rússlandi. Myndin tengist fréttinni óbeint.Wikimedia Commons Úkraínski herinn gerði umfangsmiklar drónaárásir á Kirishi-olíuhreinsunarstöðina í Leningrad-héraði í nótt, samkvæmt úkraínska fréttamiðlinum Kyiv Independent . Þá voru einnig gerðar miklar drónaárásir á höfnina í Ust-Luga, sem er hafnarborg í Eystrasaltinu, og á ísbrjót sem var við bryggju í rússnesku borginni Vyborg, en báðar borgirnar eru í Eystrasaltinu. Drónaárásirnar höfðu tímabundið áhrif á flugumferð um flugvöllinn í Pétursborg, sem er í Leningrad-héraði. Höfnin í Ust-Luga er ein stærsta höfn Rússa í Eystrasaltinu og er mikilvæg höfn fyrir útflutning á hráolíu og eldsneyti. Ekki hefur verið tilkynnt um mannfall í þessum árásum.

Share this article