Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íbúar Helsinki hvattir til að halda sig innandyra vegna flygildis

  • What: Residents of Helsinki were advised to stay indoors due to an unauthorized drone flight.
  • Impact: Authorities in Finland and Estonia monitored the situation.
Read Full Article →

Íbúar í og nærri finnsku höfuðborginni Helsinki voru hvattir til að halda sig innandyra vegna ókennilegs drónaflugs yfir borginni og héraðinu Uusimaa. Finnska ríkisútvarpið greindi frá þessu á vef sínum og sagði hættu geta stafað af flygildinu. Ákveðið var að beina flugvélum á leið til Helsinki-flugvallar til Arlanda í Stokkhólmi og Tallin höfuðborgar Eistlands. Fyrr í nótt greindu flugmálayfirvöld í Lettlandi frá mögulegu rofi á lofthelgi landsins. Íbúum austanvert í landinu var ráðlagt að halda sig inni og tilkynna um dularfulla flugumferð. Varnarmálaráðuneytið sagði flugvélar á vegum Atlantshafsbandalagsins hafa verið sendar á loft til eftirlits. Slík truflun geti orðið svo lengi sem atlögum Rússlands að Úkraínu linnir ekki, að sögn ráðuneytisins.

Share this article