Brim, sem hagnaðist um tæplega 8,7 milljarða króna í fyrra, greiðir hluthöfum ríflega fjóra milljarða króna í arð og býður þeim sem vilja að fá hann greiddan í evrum. „Ástæðan er einföld,“ segir Kristján Þ. Davíðsson, formaður stjórnar Brims, um þennan valmöguleika fyrir hluthafa. Þarf ekki að breyta evrum í krónu og aftur til baka Kristján Þ. Davíðsson, formaður stjórnar Brims. „Við erum með það mikið af tekjum í evrum að þetta er einfaldlega til þægindaauka fyrir báða aðila; að þurfa ekki að vera að breyta evrum í krónur til að borga hluthöfum út arð í krónum sem þeir ætla síðan að skipta aftur yfir í evrur. Þetta er bara hagræðingaratriði,“ útskýrir Kristján. Samkvæmt lögum sé mönnum sé frjálst að eiga hvort heldur er evrur eða krónur. Misjafnt milli ára Samkvæmt upplýsingum frá Ingu Jónu Friðgeirsdóttur, fjármálastjóra Brims, hefur þetta fyrirkomulag við útgreiðslu arðs verið við lýði hjá félaginu síðan 2021. „Það hefur verið mjög misjafnt milli ára. Þetta var til dæmis ekki mikið í fyrra en árið þar á undan var það töluert,“ svarar Inga Jóna spurð um hversu mikið og hversu margir hluthafar hafi valið að fá arð sinn í evrum. Útgreiðsla arðsins samkvæmt stefnu Brims Útgreiðsla arðsins hjá Brimi er samkvæmt stefnu félagsins sem kynnt var í skráningarlýsingu 2014. Um er að ræða 2,1 krónu á hlut, sem eru 4.043 milljónir króna eða um 27,5 milljónir evra. „Hluthafar sem hyggjast óska eftir arðgreiðslu í evrum skulu tilkynna félaginu það fyrir lok dags 15. apríl 2026 á þar til gert eyðublað,“ segir í tilkynningu frá félaginu þar sem farið er yfir niðurstöður aðalfundar sem fram fór 19. mars síðastliðinn.