Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 á blaðamannafundi sem hefst kl. 16:15. Nálgast má streymi af fundinum hér að neðan. Þegar fjármálaáætlun var síðast lögð fram í mars á síðasta ári var gert ráð fyrir 19,8 milljarða króna halla árið 2026 en 2 milljarða króna afgangi 2027. Í meðförum þingsins versnaði staðan og var þá gert ráð fyrir 26,1 milljarðs króna halla árið 2026 og 1 milljarðs króna halla árið 2027. Sjá einnig Hallalaus ríkissjóður 2027?