Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hló að nýrri fjármálaáætlun

Read Full Article →

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist hafa hlegið við lestur nýrrar fjármálaáætlunar fyrir árin 2027-2031 sem fjármálaráðherra kynnti um fjögurleytið í dag. „Stjórnin hefur lengi boðað að áætlunin fæli í sér lausn efnahagsvandans og lagt áherslu á að ríkissjóður verði rekinn með afgangi 2027,“ skrifar Sigmundur í færslu á samfélagsmiðlum. „Nú liggur niðurstaðan fyrir. Hærri skattar 2027 (svo kallað „aðhald á tekjuhliðinni“) og afgangur upp á …1 milljarð króna! 0,06 % af áætluðum tekjum.“ Hann segir þetta kannski ekki beint fyndið á hefðbundinn hátt, heldur frekar grátbroslegt. „Sem betur fer er þó ekki gert ráð fyrir ESB-aðildarferli og þeim kostnaði sem því fylgir. Það myndi breyta áformuðum afgangi í halla.“ Fjármálaáætlunin gerir ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs verði orðin jákvæð á árinu 2027, í fyrsta sinn frá árinu 2018. Gert er ráð fyrir afgangi upp á 1,1 milljarð króna á árinu 2027 og að afkoman fari batnandi fram til ársins 2031. Þess má geta að þegar fjármálaáætlun var síðast lögð fram í mars 2025 var gert ráð fyrir 19,8 milljarða króna halla árið 2026 en 2 milljarða króna afgangi 2027. Mynd tekin úr kynningu fjármálaráðherra á nýrri fjármálaáætlun sem var birt í dag.

Share this article