Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Fyrstu viðbrögð mín voru að hlæja“

Read Full Article →

„Fyrstu viðbrögð mín voru að hlæja,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti í gær. „Það var búið að tala svo lengi um að þetta ætti að verða lausnin. Þarna myndi ríkisstjórnin birta upplýsingar um hvernig ætti að takast á við efnahagsvandann. Niðurstaðan er fyrst og fremst sú að það ætti að hækka skatta, auka álögur á almenning næstu árin og ná hallalausum frálögum 2027 upp á einn milljarð króna.“ Hann segir það mjög lágt hlutfall áætlaðra tekna ríkisstjórnarinnar. „Það er allur árangurinn sem á að nást með auknum álögum.“ Ekkert aðhald Bæði Sigmundur Davíð og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, telja fyrirætlanirnar síst til að hjálpa þjóðinni meðan mikil verðbólga og hátt vaxtastig einkenna efnahagsástandið. „Það er ekkert aðhald á þessu ári,“ segir Guðrún sem lítur svo á að áætlunin sé veik niðurstaða í stórum umbúðum. „Ríkisstjórnin er með þessu í rauninni að skilja Seðlabankann eftir einan í baráttunni við verðbólgu og vexti í landinu.“ Áætlunin er vonbrigði að hennar mati. Sjálf bjóst hún við meiru. Rúmlega einn milljarður í afgang á næsta ári sé mjög brothætt. „Þau tala eins og þetta sé stórsigur í baráttunni við verðbólgu og vexti. Þetta er alltof lítið og alltof seint.“

Share this article