Einn af hverjum fimm Færeyingum flytur úr landi og kemur ekki aftur. Kosningar til Lögþingsins sem fara fram í dag snúast því um að skapa framtíð sem togar fólk aftur til landsins, að mati fyrrverandi formanns Vestnorræna ráðsins. Færri konur eru í framboði núna en síðustu ár. Einn af hverjum fimm flytja úr landi og koma ekki aftur Um 39 þúsund Færeyingar kjósa til Lögþingsins í dag. Aksel V. Johannesen lögmaður og formaður Jafnaðarmanna boðaði til kosninga eftir að stjórnin sprakk í lok febrúar vegna ósættis um atvinnumál og lagningu neðansjávarganga. Steinunn Þóra Árnadóttir er fyrrverandi formaður Vestnorræna ráðsins. Hún segir efnahags- og húsnæðismál, þá sérstaklega yngra fólks, hafa verið áberandi í kosningabaráttunni. „Það hefur verið bent á að einn af hverjum fimm Færeyingum flytur úr landi og kemur ekki aftur þannig að það er verið að kjósa um það að skapa framtíð sem togar fólk aftur heim.“ Kosningarnar í Færeyjum í dag snúast meðal annars um að skapa framtíð sem togar fólk aftur heim, segir fyrrverandi formaður Vestnorræna ráðsins. Útlit er fyrir að flokkur lögmannsins tapi fylgi. Kosningarnar snúast einnig um velferðarmál og sambandið við Dani. Nánast allir flokkar sem bjóða sig fram vilja að Færeyjar verði sjálfstæðari. „Þannig að mér finnst mjög líklegt að sama hvernig þessar kosningar fara, þá verði sjálfstæðismálið áfram á dagskrá, en kannski út frá færeyskum hagsmunum og færeysku þjóðskipulagi, að þeir taki öll málin heim og stýri þeim sjálfir.“ Færri konur í framboði en undanfarin ár Í síðustu kosningum 2022 var kjörsókn rúmlega 88 prósent. Það sama virðist vera uppi á teningnum í dag en kjörstöðum verður lokað klukkan átta í kvöld. Miðað við nýjustu könnun færeyska ríkisútvarpsins missir stjórnin meirihluta sinn. „Það virðist vera hægri sveifla í gangi núna en það er líka athyglisvert að rúm 20 prósent voru enn óákveðin fyrir nokkrum dögum þannig að þetta er svolítið opið.“ Steinunn Þóra segir líka athyglisvert að færri konur séu í framboði en undanfarin ár. „Þeim flokkum sem hefur verið að ganga hvað best í skoðanakönnunum, þeir hafa mjög ójöfn kynjahlutföll þannig að konum gæti fækkað verulega á færeyska þinginu ef þeir flokkar vinna mikinn sigur.“ Það gætu því orðið breytingar eftir kosningarnar. „Það gætu orðið talsverðar breytingar en það er auðvitað mjög stór hluti óákveðinn þannig að það er svolítið erfitt að sjá fyrir sér hvað gerist næst.“