Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Klíníkin fer ekki í samstarf við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur legurýma

Read Full Article →

Klíníkin hefur ákveðið að fara ekki í samstarf við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur legurýma, með áherslu á þjónustu við aldraða einstaklinga með gild færni- eða heilsumat. Viðræður hafa staðið yfir undanfarnar vikur um mögulegt samstarf, en frá upphafi var ljóst að slíkur rekstur fæli í sér verulegar áskoranir, segir í fréttatilkynningu sem Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, sendi á fjölmiðla í gær. Þar segir jafnframt að þjónustan sem óskað var eftir sé að mörgu leyti frábrugðin núverandi starfsemi Klíníkurinnar og þörf sé á meiri uppbyggingu, aðbúnaði og sérhæfðu heilbrigðisstarfsfólki. Samstarfið hefði kallað á umfangsmiklar breytingar á húsnæði til að uppfylla kröfur og tryggja viðeigandi þjónustu. Það er því niðurstaða Klíníkurinnar að fara ekki í þessa starfsemi og aðrir séu betur til þess fallnir að sinna þessari þjónustu með skilvirkum hætti. Í fréttatilkynningunni segir einnig að Klíníkin sjái fjölmörg tækifæri í annars konar samstarfi við heilbrigðisyfirvöld, meðal annars við móttöku sjúklinga sem þarfnast endurhæfingar en hægt væri að nýta sjúkraþjálfun Klíníkurinnar og auka nýtingu skurðstofa fyrir tilteknar aðgerðir. Klíníkin hefur nú þegar kynnt heilbrigðisyfirvöldum þessar hugmyndir.

Share this article