Forstjóri Sjúkratrygginga segir að enn séu óvissuatriði um opnun hjúkrunarrýma hjá Klíníkinni. Samningaviðræður Sjúkratrygginga Íslands og Klíníkurinnar hafa staðið í nokkrar vikur. Sigurður H. Helgason, forstjóri SÍ, segir að það gæti farið að skýrast á næstu dögum í hvaða átt stefnir. Best sé að segja sem minnst á þessum tímapunkti. Hann segir að verið sé að skoða ólíka valkosti um mögulega nýtingu rýmanna. Náist samningar muni taka tíma að koma starfseminni af stað. Opnun tíu til tuttugu hjúkrunarrýma hjá Klíníkinni er meðal aðgerða sem heilbrigðisráðherra boðaði eftir krísufund starfsfólks bráðamóttökunnar í febrúar. Þá er lokafrágangur á 100 nýjum hjúkrunarrýmum í Urðarhvarfi í fullum gangi. Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar sem rekur rýmin, segir stefnt að því að fyrstu íbúar flytji inn í lok næstu viku eða byrjun þeirrar þarnæstu, þ.e. öðru hvoru megin við helgina 21.-22. mars. Samkvæmt plani verða öll 100 rýmin komin í notkun innan átta vikna frá þeim tíma. 108 á Landspítala bíða eftir hjúkrunarrými 108 liggja inni á deildum Landspítalans og bíða þess að komast í hjúkrunarrými. Það eru 10 færri en þeir voru þegar starfsfólk bráðamóttöku hélt neyðarfund vegna ástandsins á deildinni fyrir rétt tæpum mánuði síðan. Þá eru 17 inniliggjandi á bráðamóttöku sem bíða innlagnar á aðrar deildir, vegna plássleysis. Biðtími eftir innlögn er nokkrir sólarhringar, að sögn Andra Ólafssonar, upplýsingafulltrúa spítalans. Unnur Ósk Stefánsdóttir, formaður Félags bráðalækna, segir að bráðamóttakan sé ekki farin að finna fyrir aðgerðum, en að fundurinn hafi hleypt meira lífi í umræður og aðgerðir. Hún segist trúa því að unnið sé að því að bæta stöðuna, en telur að áhrifa verði í fyrsta lagi vart í vor.