Bráðamóttaka Landspítalans er yfirfull og ástandið þar hefur aldrei verið verra að mati starfsfólks. Átta starfsmenn greindust með berklasmit í byrjun árs. Í febrúar sendu stjórnendur spítalans minnisblað til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um hversu alvarleg staðan væri. Í minnisblaðinu kom fram að starfsmenn bráðamóttöku óskuðu eftir því að 40-50 sjúklingar yrðu færðir annað. Alma Möller var gestur Kastljóss í kvöld. Hún segir ljóst að staðan sé slæm og vandinn langvarandi og því taki tíma að vinda ofan af honum. Frá 13. febrúar hafa 50 aldraðir einstaklingar verið útskrifaðir af bráðamóttöku Landspítalans. Alma segir að það dugi ekki til vegna þess að sífellt komi fleira fólk sem þarf á hjúkrunarrýmum að halda á bráðamóttökuna. Heilbrigðisráðherra segir að stefnt sé á að taka í notkun 100 hjúkrrunarými í Urðarhvarfi eftir tvær vikur. Ófremdarástand hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans og starfsfólk segir ástandið verra en nokkru sinni. Hundrað hjúkrunarrými í Urðarhvarfi Til stendur að opna nýtt hjúkrunarheimili, svokallað biðrými, í Urðarhvarfi í Kópavogi á næstu vikum. Þar á að vera hægt að taka inn allt að 100 sjúklinga í senn. Alma bindur vonir við að hægt verði að hefja starfsemi þar eftir tvær vikur. „Það verða auðvitað ekki fluttir 100 í einu en það á að byrja, á ég von á í mars.“ Hún býst við að það taki nokkrar vikur að ná fullum afköstum í Urðarhvarfi. Engin lausn sé fljótvirk og líklega séu enn einhverjar vikur í að staðan fari að batna. „Urðarhvarf er okkar haldreipi.“ Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Heilbrigðisráðherra segir að stefnt sé á að taka í notkun 100 hjúkrrunarými í Urðarhvarfi eftir tvær vikur. Ófremdarástand hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans og starfsfólk segir ástandið verra en nokkru sinni.