Innlent | mbl | 30.3.2026 | 23:00 Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Kristján Jón Jónatansson framkvæmdastjóri Klíníkurinnar og Hjálmar Þorsteinsson, forstöðumaður lækninga og bæklunarlæknir. Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) aðeins hafa viljað ræða þann möguleika að læknamiðstöðin tæki að sér hjúkrun aldraðra sjúklinga Landspítalans, í viðræðunum þeirra á milli, í stað þess að þjónusta sjúklinga sem læknamiðstöðin sérhæfir sig í. SÍ hafi gert Klíníkinni ljóst að ekki yrði opnað á aðrar umræður á þessum tímapunkti. Klíníkin þyrfti að fjölga stöðugildum um allt að fjórtán og fjárfesta í nýjum búnaði til að breyta rýmunum sínum í hjúkrunarrými. Mun skynsamlegra hefði verið að Klíníkin fengi að taka við þeim sjúklingum sem hún er þegar með starfsfólk og aðstöðu til að gera, að mati framkvæmdastjórans. Frétt af mbl.is Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Tólf legurými til umræðu Í yfirlýsingu frá Klíníkinni fyrir helgi kom fram að ekkert yrði af samstarfi læknamiðstöðvarinnar og Sjúkratryggingar Íslands um rekstur legurýma. Viðræður höfðu staðið þeirra á milli í nokkrar vikur um hvernig nýta mætti Klíníkina betur til að draga úr álaginu á Landspítalann. „Okkur var gert ljóst að það yrði alla vega ekki opnað á umræður um eitthvað annað á þessum tímapunkti,“ segir Kristján Jón Jónatansson framkvæmdastjóri Klíníkurinnar um viðræðurnar við SÍ, og vísar til þess að SÍ hafi aðeins viljað leggja áherslu á þjónustu við aldraða í samningaviðræðunum. Hann segir viðræður hafa staðið yfir um tólf legurými sem eru nú laus hjá Klíníkinni, á meðan læknamiðstöðin er enn að skala upp starfsemi sína í nýju og stærra húsnæði. „Við erum auðvitað með fleiri legurými en við hefðum ekki getað fest þau til lengri tíma út af því að við erum að opna tvær nýjar skurðstofur.“ Frétt af mbl.is Legurými staðið til boða í mánuði Klíníkin nýttist betur fyrir skurðaðgerðir Kristján segir fulltrúa Klíníkurinnar hafa komið því á framfæri að læknamiðstöðin myndi nýtast heilbrigðiskerfinu mun betur til að taka á móti sjúklingum sem þurfa að komast að í skurðaðgerðir, frekar en sem hjúkrunarrými. Hann nefnir sem dæmi aðgerðir vegna mjaðmabrots. „Mjaðmabrotinn einstaklingur sem kemur inn á bráðamóttöku, hann er rúmfastur frá því að hann kemur inn og þar til búið er að gera að honum og hann svo sendur í endurhæfingu.“ Sjúklingurinn gæti þó farið á Klíníkina um leið og búið væri að greina hann með mjaðmabrot, þar sem viðkomandi gæti gengist undir aðgerð og aðstaða er til að sinna endurhæfingu hans. „Þetta eru sjúklingar sem væru hér inni ekki lengur en fjórar vikur. Svo gætum við útskrifað viðkomandi.“ Þjónusta við aldraða einstaklinga sem ættu að vera á hjúkrunarrýmum sé aftur á móti allt annars eðlis. Frétt af mbl.is Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Gekk ekki upp Kristján segist hafa skoðað málið frá mörgum hliðum, og m.a. ráðfært sig við hjúkrunarheimili, en á endanum komist að þeirri niðurstöðu að óskynsamlegt væri að reyna að breyta legurýmunum lausu í hjúkrunarrými. „Þetta eru mjög veikir einstaklingar, margir eru rúmliggjandi og við höfðum sjálfsagt þurft að kaupa lyftur í öll herbergin. Þetta eru þungir sjúklingar í umönnun og við hefðum sjálfsagt þurft að bæta við tólf til fjórtán stöðugildum fyrir tólf sjúklinga. Þetta var dæmi sem bara gekk ekki upp.“ Hann ítrekar að þess vegna hafi Klíníkin lagt áherslu á að mun meiri samlegðaráhrif myndu verða ef læknamiðstöðin tæki við annars konar sjúklingum. „Ég er með sjúkraþjálfun í húsinu, hjúkrunarfræðinga og lækna á skurðstofunni.“ Boltinn hjá ráðuneytinu Af hverju hafði spítalinn ekki áhuga á öðru en hjúkrunarrýmum? Veistu það? „Við höfum lagt allar okkar hugmyndir á borð en við höfum ekki fengið neitt mótspil. Þau hafa ekki komið fram með hugmyndir eða tillögur – við höfum í raun ekki fengið svör frá þeim af hverju það er ekkert annað til umræðu. Það er bara þeirra að svara því.“ Hann segir boltann nú hjá ráðuneytinu og útilokar ekki að heyra frá þeim eftir páska. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » FH-ingarnir voru afslappaðir í bílstjórasætinu Sænska stjarnan niðurbrotin Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Náð meira en helmingi markmiða sinna í Íran Ólympíufararnir unnu fjórfalt Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðsnúningur í rekstri hjá RÚV „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Sumir hermenn dvelja á hótelum Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » FH-ingarnir voru afslappaðir í bílstjórasætinu Sænska stjarnan niðurbrotin Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Náð meira en helmingi markmiða sinna í Íran Ólympíufararnir unnu fjórfalt Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Fyrirhuguð malbikun dugir ekki Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Segja fyrirsætuskrifstofur hafa unnið með Epstein Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana